Yfirstandandi sýningar

Systurnar Sara og Svanhildur hafa málað saman frá því síðsumars 2010. Þær kjósa að kalla hugmyndavinnuna og framkvæmdina “dúettmálun” og hún fer þannig fram að þær vinna hugmyndir saman frá grunni, kasta þeim á milli sín, grípa og annaðhvort henda eða prjóna við.

 Í málverkunum má sjá systurnar í aðstæðum sem eru dæmigerðar fyrir þær sjálfar og líf þeirra en einnig leita þær víða fanga svo sem í ævintýrum og um leið bregður fyrir þekktum minnum og myndum úr listasögunni.   

<<Til baka