10. febrúar til 4. mars 2012
Systurnar Sara og Svanhildur hafa málað saman frá því síðsumars 2010. Þær kjósa að kalla hugmyndavinnuna og framkvæmdina “dúettmálun” og hún fer þannig fram að þær vinna hugmyndir saman frá grunni, kasta þeim á milli sín, grípa og annaðhvort henda eða prjóna við. Vinnuferlið hefst á samningaviðræðum um myndbyggingu og útfærslu og síðan tekur við málunin sjálf þar sem systurnar standa frammi fyrir sama striganum og mála tvíhent, ef svo má að orði komast. Segja má að margar myndanna séu ævintýramyndir með sjálfsævisögulegulegu ívafi þar sem yrkisefnin eru áhugamál þeirra og persónuleg reynsla. Í málverkunum má sjá systurnar í aðstæðum sem eru dæmigerðar fyrir þær sjálfar og líf þeirra en einnig leita þær víða fanga svo sem í ævintýrum og um leið bregður fyrir þekktum minnum og myndum úr listasögunni.
10. mars til 1. apríl 2012
Ljósmyndir. Sýndar verða þrjár myndraðir: Griðastaðir, Skjól og Svörður. Öll þessi verk þróast sem persónuleg viðbrögð við bankahruni og atburðum tengdum því. Íslenskt hugvit, íslensk hönnun, og griðastaðir þeirra sem landið byggja eru meðal annars viðfangsefni verkanna.
14. apríl til 12. maí 2012
Birtingamyndir myndlistar í borgarlandslaginu.
Um er að ræða umfangsmikið sýningarverkefni sem tekst á við birtingamyndir myndlistar í sjálfu borgarlandslaginu. Í verkefninu er horft til listamanna sem vinna með samfélagslegar tengingar í verkum sínum, vinna með staðhætti eða hverskonar inngrip í opinberu rými; þar sem ástand, útlit, skipulag, tíðaranda, stjórnmál og saga borgarinnar kemur við sögu. Þannig verður Reykjavíkurborg í senn viðfangsefni og vettvangur sýningarinnar, þar sem tekist verður á
við margslungna staði og fjölbreytta menningu. Stefnt er að því að nota borgina sem sýningarrými fyrir framsækna myndlist, þar sem staðir í borginni og íbúar hennar verða virkjaðir til þátttöku í gegnum hugmyndir ólíkra listamanna, jafnt í sínu margbrotna skipulagi og með sínum sérstöku eiginleikum
19. maí til 1. júlí 2012
Náttúrutengd list í innsetningu með ljósmyndum. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavik 2012 sem m.a. fjallar um skandinavíska list í óhefðbundnu sýningarrými.
11. ágúst til 2. september 2012
Málverk, teikningar, innsetning. Helgi Þorgils Friðjónsson hefur áður sýnt með Lars Ravn frá Danmörku og Holger Bunk frá Þýskalandi t.d. í Listasafninu í Silkeborg og Charlottenborg í Kaupmannahöfn. Þar gerðu þeir innsetningu sem seldist í heild sinni til Statens Museum for Kunst í Kaupmannahöfn. Þrímenningarnir hafa sýnt saman við önnur tækifæri m.a. með sýningarhópnum “Corner” nokkrum sinnum, en það er gamall hópur, sem sýndi Cobra listamennina áður en hið raunverulega Cobra var stofnað.
September 8th to September 30th 2012
Sculptures and photographs.
6. til 28. október 2012
Kolateikningar, þrykk. Ragnheiður Jónsdóttir, sem einkum er þekkt fyrir grafíverk sín, sýnir nýjar kolateikningar
sem og eldri verk.
3. nóvember til 16. desember 2012
Sýning á verkum í eigu safnsins