Sýningar framundan

14. apríl til 13. maí 2012

NÚNINGUR/FRICTION - Einar Garibaldi Eiríksson, Kristinn E. Hrafnsson, Ólafur S. Gíslason

NÚNINGUR / FRICTION er vettvangur fyrir hugmyndir listamanna sem verða settar í öndvegi og lögð verður áhersla á að þeir nýti sér þær sérstæðu aðstæður sem borgin býður uppá, s.s. með því að stofna til samstarfs við ýmsar stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga sem stutt geta framkvæmd eða þróun hugmyndanna. Þannig verður myndlistin virkjuð sem tæki til að auka þekkingu okkar og skilning á borgarumhverfinu og samfélagi þess.

Verkefninu verður miðlað á ólíkum þróunarstigum og í margvíslegum birtingarmyndum, en fyrsta sýningin verður í Listasafni ASÍ vorið 2012, en hún verður einskonar miðstöð eða vinnustofa verkefnisins. Þar verður miðlað bakgrunnsupplýsingum um verk og athafnir listamannanna, auk þess sem þar verður safnað saman yfirliti um verkefnið í heild; upptökum af viðburðum eða athöfnum, textum, teikningum og líkönum af verkum sem hafa verið gerð eða eru í bígerð. Verk listamannanna verða kynnt á ólíkum stigum, ýmist sem hugmyndir eða útfærð verk. Þau geta verið á víð og dreif um borgina og aðeins sett á svið tímabundið og á ólíkum tímum. Í ferlinu koma ólíkir og fræðimenn til með að styðja við verkefnin með þátttöku, rannsóknum, skrifum og útgáfu og þar sem miðlar og listgreinar skarast má reikna með faglegum núningi sem skilar sér í áhugaverðum niðurstöðum verkefnisins. Sýningarrýmið verður þannig nýtt sem rannsóknarmiðstöð borgarinnar á myndlistarlegum forsendum, en á síðari stigum er hugmyndin að blása til málþings um verkefnið og hugsanlega síðar draga það saman til sérstakrar útgáfu.

Þátttakendur í sýningunnieru m.a.: Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ásmundur Ásmundsson, Berglind Jóna Hlynsdóttir, Christian Hasucha, Einar Garibaldi Eiríksson, Elin Wikström, Hlynur Hallsson, Ingirafn Steinarsson, Kristinn E. Hrafnsson, Margrét Blöndal, Ólafur Sveinn Gíslason, Páll Haukur Björnsson, Ósk Vilhjálmsdóttir, Unnar Örn Auðarson, Þorvaldur Þorsteinsson. 

<<Til baka