15. október til 6. nóvember 2011
Í myndlistinni sinni hefur Þorbjörg unnið með hversdagsleikann og undursamlega fegurð hans. Stillt upp atburðum og sett á svið. Endurgert og endurskapað hluti og atburði. Gert ljósmyndir, vídeó, módel og innsetningar. Stundum á persónulegum slóðum eins og í verkinu STAÐIR FYRIR MINNINGAR (sýnt í Listasafni ASÍ 2005) þar sem líkön af húsum og herbergjum voru umgerðir um minningar og atburði. Stundum með óljósari og ævintýralegri tengingum, raunverulegum eða tilbúnum.
15. október til 6. nóvember 2011
Á sýningunni í Listasafni ASÍ umbreytir Inga Þórey safninu í annan viðkomustað á einu og sama ferðalaginu. Með innsetningu málverka og myndastytta gerir hún tilraunir með “spennu” augnabliksins, “spennu” biðtímans og togstreitu efnisins.
Hugrenningartengsl beinast að stöðugum togkrafti, draumkenndum stærðarhlutföllum og æskutengdum litum um leið og skynja má nærveru frumefnanna. Búnaður farartækja á borð við segl og hreyfla birtast og beisla staðvinda salarins með ákveðnum hætti. Fyllt vatnsílát verða falin í vegg sem skiptir rými í tvo hluta, lokað og aðgengilegt.
Í myndlistinni leitar Inga Þórey gjarnan að bilinu milli svefns og vöku og því sem leynist í undirvitundinni eða á földum, huglægum stöðum.
Viðtal í Víðsjá: http://dagskra.ruv.is/ras1/4590443/2011/10/17/4
17. september til 9. október 2011
Sunnudaginn 25. september kl 15:00 verður rabbfundur í Ásmundarsal í tengslum við sýninguna, þar sem fjallað verður um hugmyndafræði Henry David Thoreau (1817-1864) útfrá spurningunni; Á Thoreau erindi við okkur í dag? Á fundinum munu Hildur Hákonardóttir og Elísabet Gunnarsdóttir segja frá þýðingunni á þekktasta verki Thoreau - Walden; or, life in the woods, sem þær eru vinna að núna.
Goddur ræðir sýningu Hildar Hákonardóttur í Djöflaeyjunni
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4614604/2011/09/27/
6. ágúst til 11. september 2011
Sýning í tilefni af 50 ára sögu safnsins.
Sýningarstjórar: Kristín G. Guðnadóttir og Steinunn Helgadóttir
21. maí til 26. júní 2011
Á meðan Harpa Árnadóttir dvaldi á gestavinnustofu síðasta sumar í einstöku umhverfi Skagafjarðar hélt hún óformlega dagbók í máli og myndum. Ólík hughrif dag frá degi tóku smám saman að tengjast og mynda heild sem samanstóð af endurteknum stefjum og byggði á einlægum undirtón. Í vinnuferlinu ræður tilviljun oftar en ekki för, hún lýsir því sjálf eins og andardrætti eða sundtökum. Sýningin er hluti af Listahátið 2011 og sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson. Nánar á www.harpaarnadottir.com
9. apríl til 14. maí 2011
Verk úr gjöf til safnsins.
Viðtal í víðsjá 7. apríl: http://dagskra.ruv.is/ras1/4555637/2011/04/07/8/. LOSTAFULLI LISTRÆNINGINN: Laugard. 16. apríl.
http://dagskra.ruv.is/ras1/4556998/2011/04/16/. FRÉTTABLAÐIÐ-RAGNA SIGURÐARDÓTTIR:http://epaper.visir.is/media/201104160000/pdf_online/1_60.pdf
FRÉTTABLAÐIÐ- RAGNA SIGURÐARDÓTTIR:
Myndlist ★★★★
12. mars til 3.apríl 2011
Sambland af nýjum og eldri verkum. Einhvers-konar frummyndir óvitundarinnar.
12. mars til 3. apríl 2011
Að gera sér í hugarlund – skáldskapur í gler og steinsteypu.
Allir skúlptúrarnir á þessari sýningu eru fígúratívir, með ræturnar í jurtaríkinu.
Þetta eru nýjar tegundir einstaklinga; Glittur, Elftistör, Glúrur, Trækur og fl.
Stór hluti verkanna voru unnir í samvinnu og á gestavinnustofu
The Glass Museum í Takoma, á vesturströnd Bandaríkjanna, síðastliðið sumar.
11. febrúar til 6.mars 2011
Opnun sýningarinnar er hluti af dagskrá safnanætur og stendur frá kl.19:00 til 24:00. - Listamaðurinn og fjölskylda hans spinna djass á hljóðfæri sem þau kunna ekki á. Við að taka fjölskylduna úr sínum náttúrulegu aðstæðum og setja í framandi hlutverk verður samskiptamynstur og karaktereinkenni fjölskyldumeðlima sýnilegt.
11. febrúar til 6. mars 2011
Sýningaropnunin er hluti af dagskrá safnanætur í Listasafni ASÍ og stendur yfir frá kl. 19:00 til 24:00. Videóinnsetning.
Höggmynd/myndband. Ljóðrænt og óhlutbundið samtal í óræðum og draumkenndum heimi.
11. febrúar til 6. mars 2011
Opnun sýningarinnar er hluti af dagskrá safnanætur og stendur frá kl. 19:00 til 24:00. Gunnhildur og Kristín reisa svið í Ásmundarsal sem getur tekið á sig margar myndir og er leikmynd fyrir röð vídeóverka. Þær bjóða almenningi að flytja eintöl og leikin atriði meðan á sýningu stendur. Þrjá laugardaga kl. 13:00, þann 12., 19., og 26. febrúar verða tekin upp atriði og er auglýst eftir fólki sem vill taka þátt í sýningunni. Áhugasömum er bent á að skrá sig á: gjoftiltinydarhatign@gmail.com.
Sýningin var áður sýnd í AceArt galleríi, í Winnipeg, Kanada, árið 2008, undir heitinu Auditions, og tilheyrði sýningarröðinni Visions, sem Hannes Lárusson myndlistarmaður og dr. Birna Bjarnardóttir, kennari við Winnipeg háskólann, höfðu veg og vanda að, en sá fyrrnefndi var sýningarstjóriÍ verkinu.
Listamennirnir leitast við að sameina listgreinar; skáldskap, myndlist og leiklist.
15. janúar til 6. febrúar 2011
Á sýningu sinni í Gryfjunni myndgerir Hildigunnur áframhaldandi rannsókn á tilgangi/leysi sem leiðir af sér jöfnu. Innan jöfnunnar eru einingar sem unnar hafa verið í hjáverkum undanfarið ár undir formerkjum sýningarinnar “það verður þeim að list sem hann leikur”. Leikir og Kerfi eru sjaldan langt undan í listsköpun Hildigunnar. Kerfin eiga rætur sínar að rekja til eðlisfræðilegra fyrirbæra og heimspekilegra vangaveltna um hringrásir og heimskerfi en lúta lögmálum og fagurfræði leikja og spila. En í leikjum eru reglurnar ekki fullkomnar, einhver svindlar og sum kerfin ganga alls ekki upp…
15. janúar til 6. febrúar 2011
"Ég sé fyrir mér risastóran tvívíðan vef sem tæki annað rýmið (ekki algjörlega „físískt „ heldur að tilfinningu).vefurinn væri samsettur og að hluta til áþreifanlegur og að hluta til óáþreifanlegur."
Nánari upplýsingar á: www.ingibjorg.info
30. október til 21. nóvember 2010
Sýningin er í raun og veru stefnumót hins varanlega og sértæka annars vegar og hins hverfula og hlutlæga hins vegar, en um leið er hún vitnisburður um stefnumót Erlu og hennar vestræna uppruna við austrið og austræna menningu. Sýningin gefur tilefni til að gaumgæfa þennan mismun og hvað þetta stefnumót ólíkra menningarstrauma getur leitt af sér.
2. til 24. október 2010
Listhjúkkurnar Anna Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttir opna sýninguna SPOR í Listasafni ASÍ laugardaginn 2. október klukkan 15:00.
Gestur Þeirra er Ægir Ólafsson kranamaður.
Listhjúkkur einbeita sér að þjóðfélagslegu heilunarstarfi með myndlistina sem hjálpartæki.
4. til 26. september 2010
Þessi sýning er tilraun til að tengjast framrás tímans á myndrænan hátt. Efni, rými og hreyfing er sá veruleiki sem við skynjum í dagsins önn. Það er ögrandi viðfangsefni að gera grein fyrir því hvernig tíminn tengist rýminu, hver birtingarform hans geta verið.
Sjá nánar á: www.ingaragnarsdottir.com/, www.umm.is › UMM.IS › Listamenn › Listamaður
10. júlí til 29. ágúst 2010
Sýning á verkum úr eigu safnsins
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson/Móðan gráa
27. nóvember til 19. desember 2010
Áslaug Thorlacius, Finnur Arnar Arnarson, Salvör, Kristján, Hallgerður
og Helga Thorlacius Finnsbörn eru flutt inn í Listasafn ASÍ í
Ásmundarsal. Þar leggja þau nótt við dag við að setja upp
myndlistarsýningu sem opnuð verður kl. 15.00 n.k. laugardag, 27.
nóvember. Á sýningunni verða verk unnin með margvíslegri tækni.
Þetta er í annað sinn sem fjölskyldan sýnir saman. Fyrri sýninguna
settu þau upp fyrir fjórum árum eftir fjögurra mánaða dvöl í
gestavinnustofu í suður-Kína. Þá voru þau fyrst og fremst að máta sig
inn í kínverskan menningarheim. Að þessu sinni beina þau sjónum meira
inn á við og skoða hornsteinana heimili og fjölskyldu í samhengi við
íslenskar hefðir og veruleika.
15. maí til 6. júní 2010
Ólöf Nordal (f.1961) útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1986 og nam svo við Gerrit Rietveld Academy í Amsterdam. Hún lauk mastersprófi frá Cranbrook-listaháskólanum í Michigan og MFA frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Verk Ólafar er að finna í öllum helstu listasöfnum landsins auk einkasafna í ýmsum löndum. Hún hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar fyrir list sína, eins og úthlutun úr Listasjóði Dungal, Erró-styrkinn og viðurkenningu úr höggmyndasjóði Richard Serra.
Sjá nánar um listakonuna á: olofnordal.com
6. TIL 28. MARS 2010
Sigrid Valtingojer er fædd í mars 1935 og horfir hún nú til baka á langan ævi- og starfsferil.
Sigrid hefur haldið 23 einkasýningar hérlendis, á Norðurlöndunum, Evrópu og Japan. Hún hefur verið í fremstu röð íslenskra grafíklistamanna sl. 30 ár og hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín.
Sigrid sýnir nú ný verk í Ásmundarsal, eldri verk í Arinstofu og ljósmyndir og glermyndir í Gryfju.
6. TIL 28. FEBRÚAR 2010
AÐ MUNA SINN FÍFIL FEGRI er heiti á sýningu Guðrúnar Gunnarsdóttur í Listasafni ASÍ. Sýningin er unnin út frá fíflum þ.e.a.s. blómunum fíflum, latneska heitið á túnfífli er Taraxacum Weber.
24. október til 15. nóvember 2009
Sýning á verkum Gunnfríðar Jónsdóttur, myndhöggvara, sem ásamt manni sínum Ásmundi Sveinssyni byggði húsið að Freyjugötu 41, þar sem Listasafn ASÍ er nú til húsa.
Gunnfríður var ein af fyrstu kvenmyndhöggvurunum á Íslandi. Verk hennar má finna í Ráðhúsinu í Stokkhólmi, í Hljómskálagarðinum og hjá Strandakirkju. Verk hennar þar minnir okkur á engil - eða Maríu mey - sem leiddi sjómenn í örugga höfn. Sýningarstjórar eru Kristín G. Guðnadóttir og Steinunn Helgadóttir.
21. nóvember til 13. desember 2009
Halldór Ragnarsson er með innsetningu í Gryfjunni. Frekari upplýsingar: www.hragnarsson.com
21. nóvember til 13. desember 2009
Sýningarhugmyndir mínar fyrir Listasafn ASÍ, Ásmundarsal, snúast m.a.
um hugtak sem nefnist ljósflæði, en tengist einnig atferlissálfræði.
Ég hef verið að skoða hvernig hegðun lífs stjórnast af ljósi og myrkri. Það er grein innan sálfræðinnar sem tekur hegðun fólks í ákveðnu rými sérstaklega fyrir og kenningar þess oft notaðar í búðum eða biðsölum. Minn áhugi hefur aðallega snúist um ljós. Mér finnst sérlega heillandi að sitja í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni og horfa á fólk sitja með lokuð augun fyrir framan yndisljósin, eins og blóm í ljóstillifun. Það er bæði svo náttúrulegt og manngert.
Einhverskonar blanda af raunveruleika og sýndarveruleika.
Til þess að hafa bein áhrif á heilann, melantóninmagn og taugakerfið þarf ljós að líkja sem mest eftir sólarljósi. Ég bý til eins konar ljóstillifunarpott í Ásmundarsal í myrkasta skammdeginu og býð gestum að njóta.
6. TIL 28. FEBRÚAR 2010
Guðmundur Ingólfsson ljósmyndari (fæddur 1946) hlaut menntun sína í Þýskalandi á árunum 1968-71, en hefur starfað á eigin vegum í Reykjavík frá 1972.
Myndirnar sem hann sýnir í Listasafni ASÍ í boði Guðrúnar Gunnarsdótttur eru úr syrpu ljósmynda af rýmum sem hann hefur ljósmyndað frá árinu 1993, flestar úr lýsis- eða olíutönkum frá ýmsum stöðum á landinu.
9. TIL 31. JANÚAR 2010
Jóhannes Dagsson sýnir í Gryfjunni og Arinstofu. Viðfangsefnið er landslag sem tilbúningur. Með því að fyrirmyndin er sett innan sviga verður skynjun og upplifun megin atriði. Val okkar á byrtingarmyndum og hvernig við veljum að upplifa er í forgrunni, í stað þess að vera aðeins aðferð til þess að nálgast innihald verksins. Fyrir utan að alltaf er gefandi að líta augum ný lönd.
Sýningin samanstendur af ljósmyndum og landkynningarmyndbandi. Tónlistin við myndbandið er eftir kookzik (Gabriel Malenfant og Marc-Antoine Chenail).
9. Til 31. janúar 2010
Þorri Hringsson útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989 og frá Jan van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi 1991. Hann hefur haldið margar einkasýningar hér heima og í Hollandi og tekið þátt í samsýningum. Þorri hefur kennt við Myndlistarskóla Reykjavíkur frá árinu 1992 en að auki hefur hann lagt stund á blaðamennsku og myndasögugerð og hann var meðal annars í ritstjórna myndasögutímaritsins GISP. Verk eftir hann eru í eigu opinberra og einkasafna á Íslandi og annarstaðar í Evrópu, t.d. Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur.
Á sýningunni í Ásmundarsal verða málverk sem Þorri hefur málað í Aðaldal á síðustu þremur árum.
26. september til 18. október 2009
Listamaðurinn tekur fyrir á sýningunni byggingarrými og húsgögn, hlutverk þeirra og hliðstæður við mannslíkamann.
26. september til 18 október 2009
LOTHAR PÖPPERL sýnir málverk, ljósmyndir og þrívíð verk í Arinstofu og Gryfju.
29. ágúst til 20. september 2009
Valgerður Hauksdóttir sýnir ný grafíkverk og ljósmyndir.
Nánari upplýsingar á heimasíðu listamannsins: www.hauksdottir.is.
27. júní til 23. ágúst 2009
Í sumar verður í safninu sýning á verkum eftir listamennina Jón Stefánsson, Jóhannes Sveinsson Kjarval og Svavar Guðnason, þrjá stórmeistara íslenskrar myndlistar.
30. maí til 21. júní 2009
Karl Ómarsson sýnir verk unnin í jarðleir auk tvívíðra verka í Gryfjunni.
30. maí til 21. júní 2009
Aðalheiður Valgeirsdóttir sýnir olíumálverk í Ásmundarsal. Verkin eru máluð austur í sveit sl. vetur. Í þeim birtast náttúruupplifanir frá hausti til vors þar sem ólík birtuskilyrði tímans varpa síbreytilegu ljósi á náttúruna sem er birtunni undirgefin. Við verðum vitni að endurteknu en þó breytilegu sjónarspili á leiksviði náttúrunnar um leið og við erum hluti af því. Í verkunum tvinnast saman huglæg sýn og náttúrusýn sem markast af tíma ljóssins.
2. til 24. maí 2009
Þóra Sigurðardóttir sýnir texta, teikningar og grafík í Ásmundarsal og arinstofu.
Verkin fjalla um gólf og veggi húss; snertingu
við rými og tíma, hreyfingu og kyrrstöðu.
Þóra stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Ísland
og framhaldsnám við Det Jyske Kunstakademi Danmörku. Þóra hefur tekið þátt í samsýningum og sýnt verk sín á einkasýningum hér heima og
erlendis um árabil.
Í Gryfjunni er hljóðverk Sólrúnar Sumarliðadóttur tónlistarkonu, en hún er m.a. meðlimur í hljómsveitinni Anima.
4. til 26. apríl 2009
Bjargey Ólafsdóttir sýnir teikningar af Suður-Amerískum rokkstjörnum og sápuóperustjörnum.
Nánar á heimasíðu listamannsins: www.this.is/bjargey.
4. til 26. apríl 2009
Japanska listakonan Keiko Kurita sýnir ljósmyndir sínar í Gryfju og Arinstofu Listasafns ASÍ. Sýningin, sem hún nefnir tree/sleep, er styrkt af The Nomura Cultural Foundation í Japan og var áður sýnd í Monogram Galleríinu í Tokyo í ágúst 2008. Á sýningunni eru 10 ljósmyndir sem teknar eru á undanförnum fjórum árum en myndirnar parar hún saman tvær og tvær.
Sjá nánar á: swimciel.net
7. - 29. mars 2009
Laugardaginn 7.mars verður opnuð sýning á verkum eftir Ívar Valgarðsson
Þetta er í fjórða sin á tæplega þrjátíu ára tímabili sem Ívar heldu sýningu í þessu húsi.
Hann hefur öll sýningarými þess til umráða að þessu sinni og hyggst setja upp þrjár
nýjar innsetningar. Þó þær sú ólíkar innbyrðis hvað varðar efnisgerð og framsetningu
þá er mjög ákveðinn þráður sem tengir þær saman á því myndmáli sem Ívar hefur þróað
og tileinkað sér.
7. febrúar til 1. mars 2009
Þuríður Sigurðardóttir sýnir verk sem hún hefur unnið á undanförnum árum. Í grunninn er um er að ræða tvær seríur sem eiga það sameiginlegt að byggja á hugleiðingum um eðli málverks og hafa þróast yfir í teikningu, myndbönd og hljóðverk. Annars vegar er viðfangsefni Þuríðar einstök náttúra mýrarfláka á Suðurlandsundirlendinu sem hefur undanfarna áratugi átt undir högg að sækja þegar land hefur verið ræst fram og þurrkað. Hins vegar hefur hún skoðað samband manns og hests, bæði í rannsóknum sínum á dýrinu sjálfu og síðan þeirri upplifun sem fylgir samneyti við hesta. Náttúruskoðunina færir hún yfir á ólíka miðla myndlistarinnar og varpar fram spurningum um eðlismun þeirrar skynjunar sem fer fram í náttúrunni og í sýningarsölunum. Þuríður vinnur sýningunna í samstarfi við sýningarstjórann Markús Þór Andrésson.
10. janúar til 1. febrúar 2009
Úr sýningarskrá (Guðmundur Oddur Magnússon): þessi sýning er um garða í eiginlegri og óeiginlegri merkingu... Eðli hinna guðdómlegu garða í gervallri listasögunni er ekkert annað en deiliskipulag sálarinnar - að taka stikkprufur úr landslaginu, binda með bindiefnum og mála fleti hugarástands sem er í ætt við textaverkið á hinum enda salarins og á stendur: "Ég hef aldrei komið þangað en sagt er að þar líði tímnn eftir þörfum og fegurðin sé sértæk". þar er hinn huglægi kjarni sýningarinnar þó að miðjan sé staðsett norður í landi
29. nóvember til 21. desember 2008
Laugardaginn 29. nóvember var opnuð í Listasafni ASÍ sýningin Jólakjólar.
Á sýningunni eru 15 jólakjólar sem jafn margir íslenskir hönnuðir létu sauma sérstaklega fyrir sýninguna og málverk af konum úr eigu Listasafns ASÍ eftir Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Jón Engilberts o.fl..
1. - 23. nóvember 2008
Gylfi Gíslason lést í febrúar 2006 og er sýningin haldin til að minnast hans. Gylfi kom fram á sjónarsviðið á umbrotatímum í íslenskri myndlist, var með í SÚM-hópnum en gat sér fyrst og fremst orð fyrir teikningar sínar, þar sem hann sýndi oft nýstárlegan og frumlegan stíl. Gylfi var fjölhæfur listamaður, hann myndskreytti bækur og blöð, hannaði leikmyndir, kenndi teikningu, rak gallerí, skrifaði myndlistargagnrýni í dagblöð, annaðist þáttagerð fyrir sjónvarp og útvarp og flutti fyrirlestra um íslenska myndlist. Á sýningunni verða sýndar teikningar, þrívíddarverk og myndskreytingar. Í tilefni sýningarinnar verður gefin út vegleg bók um listamanninn.
Guðmundur Oddur Magnússon (Goddur) verður með sýningarstjóraspjall sunnudaginn 16. nóvember kl. 15:00.
30.ágúst til 28.september 2008
Laugardaginn 30. ágúst sl. var opnuð í Listasafni ASÍ sýning verkum listakonunnar Sólveigar Aðalsteinsdóttur.
Viðfangsefni verkanna í Listasafni ASÍ tengjast öll tíma, rými og frásagnarmætti efnanna, en sýningin samanstendur af teikningum á pappír, viðarskúlptúrum og ljósmyndum.
Sólveig hefur sýnt myndlist sína síðan árið 1980 á fjölmörgum einka- og samsýningum hérlendis og erlendis.
21. júní til 24. ágúst 2008
Í safneign Listasafns ASÍ eru nokkur af meginverkum íslenskrar listasögu sem mörg hver eru hluti af stofngjöf safnsins frá Ragnari Jónssyni í Smára.
Sumarsýning safnsins verður samtal milli kynslóða, en sýnd verða valin verk úr safneigninni eftir J.S. Kjarval, Jón Stefánsson, Ásgrím Jónsson og fleiri af frumherjakynslóðinni í bland við verk eftir nokkra þekktustu listamenn samtímans svo sem Svövu Björnsdóttur og Birgi Andrésson.
16. maí til 15. júní 2008
Í Listasafni ASÍ sýna þeir Halldór Ásgeirsson og Paul-Armand Gette verk sem eru inblásin af hinum fjölmörgu eldfjöllum Íslands. Í verkum sínum notar Halldór logsuðutæki til að umbreyta grófgerðu hrauni í undursamlega fíngerða glerfugla, en Gette ntast við mun vísindalegri nálgun og tækni.
Paul Armand Gette er fæddur í Lyon í Frakklandi 13. maí árið 1927. 1935 gekk hann í fyrsta skipti upp á karlkyns eldfjallið Vesúvíussem kveikti löngun hans til að fara yfir mörkin. 1956 bjó hann til myndverkið „Kalkbrennsla“ sem var prentverk og skúlptúrar gert
m.a. úr svörtu efni, hrauni og talbula rasa. 13. október sama ár fæddist Halldór Ásgeirsson í Reykjavík. 1971 tók P.A.Gette upp kvikmyndina „Crystal“ með röddum W. Burroughs og B.Gysin á sama tíma og Halldór var ráðinn sem messagutti á m/s Jökulfell sem sigldi til New Bedford U.S.A. en þar hófst sagan um Moby Dick eftir Herman Melville. 1977 tók P.A.Gette þátt í Dokumenta 6 í Kassel en Halldór byrjaði um haustið í myndlistarnámi í Parísarháskóla nr.8 -Vincennes. 1978 var P.A.Gette fulltrúi Frakklands á Feneyjatvíæringnum en Halldór stundaði veggmyndagerð í skólanum og gerði kvikmyndina „Svört gríma“ í París og Reykjavík. 1986 sýndi P.A.Gette verk sín á salernum 3. hæðar MNAM. Pompidousafnsins í París en Halldór gerði forsíðu og birti teikningar í fyrsta tölublaði norræna myndlistartímaritsins SIKSI. 1991 sýndi P.A.Gette „L´amour de l´art“ á Lyontvíæringnum og tók þátt í 21. Sao Paulo Biennale á meðan eldurinn sótti stöðugt meira á Halldór sem varð til þess að hann hóf tilraunir með hraunbræðslu. 1996 setti
P.A.Gette upp sýninguna „In Natura rerum“ í fagurlistasafninu í Nantes en Halldór sýndi í febrúar ljósaverkið „Postularnir tólf“ í aflagðri kapellu í Clermont Ferrand. 1999 sýndu P.A.Gette og Halldór saman Buchsenhausen Ausstellungsraum í Innsbruck í Austurríki. Sumarið 2001 var P.A.Gette boðið að sýna í Ljósaklifi í Hafnarfirði en viðfangsefnið þar var annars vegar hafið, þangið og skeljarnar og hins vegar jörðin, eldfjallið og hraunið og bætti síðan við blómum vegna þess að þau eru kynfæri platnanna. Sama ár bræddi Halldór saman hraunsteina úr eldfjöllunum Vesúvíusi og Heklu sem leiddi til getnaðar þeirra á Mílanótríenalnum og sömu aðferðum beitti hann um haustið á Heklu og Fuji í Klakárhofinu í Japan.
5. apríl til 4. maí 2008
Listvinasalurinn var stofnaður árið 1951 af þeim Birni Th. Björnssyni og Gunnari Sigurðssyni í húsnæði Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara við Freyjugötu 41, þar sem nú er Listasafn ASÍ.
Til að minnast þessa mikilvæga kafla í sögu hússins – og íslenskrar myndlistar - var sýningin Klessulistarhreiðrið opnuð í Listasafni ASÍ 5. apríl sl. Titill sýningarinnar er fenginn úr blaðaskrifum um Listvinasalinn, en óhætt er að fullyrða að ekki hafi ríkt nein lognmolla í kringum starfsemi hans.
Listvinasalurinn var fyrsta gallerí sinnar tegundar í Reykjavík og atkvæðamikill þáttakandi í listalífi Reykjavíkur þau ár sem hann var starfræktur. Stjórnendur hans lögðu áherslu á nútímalist, sérstaklega geómetrískri og abstrakt.
Ekki voru allir jafn hrifnir af þessari “nýju” tegund myndlistar og umræður urðu oft heitar.
Flestir listamannanna sem sýndu í salnum voru ungir og íslenskir, en metnaðurinn var mikill hjá rekstraraðilum og er skemmtilegt að geta þess að í Listvinasalnum voru sýnd verk eftir listamennina Jean Arp, Picasso, Braque og Kandinsky sem Hörður Ágústsson kom með heim frá París í farangrinum.
Listvinasalurinn var ekki bara vettvangur sýninga, þar voru líka haldin lífleg kynningarkvöld þar sem rætt var og rifist um myndlist, lesið úr óútkomnum verkum ungra rithöfunda og flutt metnaðarfull tónverk, auk kvikmyndakynninga, fyrirlestra um listasögu og heimspekilegrar umræðu. Þessi kynningarkvöld urður svo vinsæl að þau sprengdu utan af sér rýmið og neyddust aðstandendur þeirra að flytja þau í stærra húsnæði í Leikhúskjallarann og Stjörnubíó.
Árið 1952 var haldin ljósmyndasamkeppni áhugaljósmyndara. Hluti þessara mynda hefur varðveist og gefa þær innsýn í umhverfi Listvinasalarins, fólkið í landinu og tímabilið almennt á þessum fyrstu árum sjötta áratugarins.
Í Klessulistarhreiðrinu má finna verk margra af listamönnunum sem sýndu í Listvinasalnum og t.d. eru málverk á sýningunni eftir Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason, Nínu Tryggvadóttur og Karl Kvaran. Mörg þessara verka koma úr safni Gunnars Sigurðssonar, annars stofnenda Listvinasalarins og er þetta fágætt tækifæri til að skoða þau.
Sýningarstjórar eru Kristín Guðnadóttir, Gunnar Gunnarsson og Steinunn Helgadóttir
8. til 30. mars 2008
Sýningin er þrískipt og eins og titillinn gefur til kynna fjallar hún um ýmsa atburði í lífi konu.
Í Ásmundarsal eru sjö stór olíumálverk er sýna ýmsa kafla úr þroskaskeiði konu.
Í arinstofu eru akrýlmyndir úr myndaflokki sem Sigurður kallar Konuskrifborðið. Einnig er þar ein höggmynd sem tengist þessum myndaflokki.
Í gryfjunni eru tvær ljósmyndir, Móðurást og Stúlkurnar í turninum. Þar er líka höggmyndin Timburturninn sem tengist ljósmyndunum.
Í verkunum eru tilvísanir í ýmsa þekkta listamenn, bæði íslenska og erlenda.
Sjá nánar á www.so.is