Fyrri sýningar

30.ágúst til 28.september 2008

Sólveig Aðalsteinsdóttir

Laugardaginn 30. ágúst kl. 15:00, verður opnuð í Listasafni ASÍ sýning verkum listakonunnar Sólveigar Aðalsteinsdóttur.
Viðfangsefni verkanna í Listasafni ASÍ tengjast öll tíma, rými og frásagnarmætti efnanna, en sýningin samanstendur af teikningum á pappír, viðarskúlptúrum og ljósmyndum.
Í Gryfjunni eru teikningar af kóngulóavefjum, í Arinstofu lit-ljósmyndir og í Ásmundarsal sýnir listakonan skúlptúra og svart-hvítar ljósmyndir þar sem ljósið hefur teiknað beint á ljósnæma filmuna án notkunar ljósmyndavélar  eða linsu. Skúlptúrarnir sem forðum voru eldhússkápar vekja til umhugsunar um samband skynjunar og efnisheimsins, um ímyndunarafl efnisins og efniskennd ímyndunaraflsins.
Inntak sýningarinnar skilgreinir Sólveig á eftirfarandi hátt:
"Umfjöllunarefni sýninga minna hafa verið umhverfi og taktur hins hversdagslega lífs. Mér hefur þótt áhugavert að kanna samhengi myndlistar, efnisins og daglegra athafna. Umbúðalaus meðferð efnisins sem þó þarf að vísa út fyrir sjálft sig. Í könnun minni með þrívíðan efnivið, t.d. með því að taka efnið úr sínu samhengi hef ég skoðað sérstaklega þau gildi sem felast í efninu, þá merkingu sem sérhver efniviður er hlaðinn og hver maður getur lesið, hvernig og hvenær hin ýmsu efni fara yfir mörkin og hætta að vera þeir hlutir sem þeir voru en umbreytast í skúlptúra og þar með í menningarfyrirbæri."
Sólveig hefur sýnt myndlist sína síðan árið 1980 á fjölmörgum einka-  og samsýningum hérlendis og erlendis.

<<Til baka