1. - 23. nóvember 2008
Gylfi Gíslason 1940-2006
Gylfi Gíslason 1940-2006
Gylfi Gíslason lést í febrúar 2006 og er sýningin haldin til að minnast hans. Gylfi kom fram á sjónarsviðið á umbrotatímum í íslenskri myndlist, var með í SÚM-hópnum en gat sér fyrst og fremst orð fyrir teikningar sínar, þar sem hann sýndi oft nýstárlegan og frumlegan stíl. Gylfi var fjölhæfur listamaður, hann myndskreytti bækur og blöð, hannaði leikmyndir, kenndi teikningu, rak gallerí, skrifaði myndlistargagnrýni í dagblöð, annaðist þáttagerð fyrir sjónvarp og útvarp og flutti fyrirlestra um íslenska myndlist.
<<Til baka