7. febrúar til 1. mars 2009
Þuríður Sigurðardóttir - Milli laga
Verkin eiga það sameiginlegt að byggja á hugleiðingum um eðli málverks og hafa þróast þaðan yfir í aðra miðla. Annars vegar hefur Þuríður skoðað samband manns og hests, bæði í rannsóknum sínum á dýrinu sjálfu og síðan þeirri upplifun sem fylgir samneyti við hesta. Hins vegar er viðfangsefni Þuríðar gróður, til dæmis einstök náttúra mýrarfláka á Suðurlandsundirlendinu sem hefur undanfarna áratugi átt undir högg að sækja þegar land hefur verið ræst fram og þurrkað.
<<Til baka