2. til 24. maí 2009
Þóra Sigurðardóttir og Sólrún Sumarliðadóttir í Listasafni ASÍ
Þóra Sigurðardóttir sýnir texta, teikningar og grafík í Ásmundarsal og arinstofu. Verkin fjalla um gólf og veggi húss; snertingu við rými og tíma, hreyfingu og kyrrstöðu.
Þóra stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Ísland og framhaldsnám við Det Jyske Kunstakademi Danmörku. Þóra hefur tekið þátt í samsýningum og sýnt verk sín á einkasýningum hér heima og erlendis um árabil. Verk Þóru eru í eigu einkasafna og opinberra safna s.s. Listasafns Íslands, Listasafns ASÍ auk safna á norðurlöndum.Jafnframt myndlistinni hefur Þóra unnið við listkennslu, skólastjórn,verkefna- og sýningarstjórn og unnið teikningar fyrir bækur og tímarit. Sjá nánar á: www.this.is/thora www.nyp.is Sólrún Sumarliðadóttir er með verkið Hljómrými í gryfju; potthljóð.
Verkið er unnið út frá leik með mjóa vatnsbunu í potti og þeim yfir- og undirtónum sem þá myndast, dropatali, málmi, gleri og fingurgómum.
Sólrún Sumarliðadóttir stundaði nám í sellóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Maastricht Conservatory í Hollandi, lauk BA gráðu í tónvísindum frá háskólanum í Utrecht og MA gráðu í menningarfræðum frá Goldsmiths College í London árið 2006. Sólrún er meðlimur hljómsveitarinnar Amiinu og hefur þannig um árabil samið tónlist, unnið hljóritanir og komið fram á tónleikum og listahátíðum víða um heim, auk þess að starfa reglulega með öðrum tónlistarmönnum, íslenskum sem erlendum. Sjá nánar á: www.amiina.com
<<Til baka