Saga Listasafns ASÍ
Listasafn ASÍ er til húsa í Ásmundarsal við Freyjugötu 41 í Reykjavík. Safnið var stofnað árið 1961 þegar iðnrekandinn og bókaútgefandinn Ragnar Jónsson í Smára gaf Alþýðusambandinu listaverkasafn sitt. Safnið er eign Alþýðusambands Íslands og starfar samkvæmt reglugerð samþykkri af miðstjórn þess.
Ragnar í Smára lagði grundvöllinn að listasafninu með því að gefa ASÍ málverkasafn sitt – um 120 myndir, flestar eftir þekkustu myndlistarmenn þjóðarinnar;Ásgrím Jónsson, Gunnlaug Scheving, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson, Júlíönu Sveinsdóttur, Nínu Tryggvadóttur, Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason og fleiri. Ósk Ragnars var sú að stofnað yrði listasafn sem kæmi listinni á framfæri við vinnandi fólk í landinu. Listasafn ASÍ hefur alla tíð starfað með þetta að leiðarljósi og hefur m.a. sérhæft sig í myndlistarsýningum sem settar eru upp á vinnustöðum og í stofnunum víða um land.
Úr svarbréfi miðstjórnar ASÍ til Ragnars í Smára frá árinu 1961 þegar ASÍ þáði að gjöf listaverkasafn Ragnars:
“Miðstjórn Alþýðusambandsins gerir sér ljóst að vandi mikill fylgir þeirri vegsemd, að “samtök íslenzkra erfiðismanna“ taki að sér varðveizlu og ávöxtun þessara dýrmætu listaverkafjársjóða, en það er von vor, að Alþýðulistasafninu verði um alla framtíð vel borgið í fóstri Alþýðusambands Íslands.”
Listaverkaeign safnsins hefur vaxið jafnt og þétt. Safninu hafa í gegn um tíðina borist margar góðar gjafir.Stærst þessara gjafa eru fjölmörg verk Kristins Péturssonar sem safnið fékk að honum látnum. Aðrar stórar gjafir til safnins eru dánargjöf Margrétar Jónsdóttur, ekkju Þórbergs Þórðarsonar sem gaf safninu verk eftir ýmsa listamenn og gjöf Ástu Eiríksdóttur, ekkju Svavars Guðnasonar sem gaf safninu verk eftir Svavar. Fjöldi listamanna hefur gefið safninu verk. Einnig hefur verið leitast við að auka safnkostinn með innkaupum á íslenskri samtímalist.
Auk þess að sýna verk úr safneigninni er safnið virkur vettvangur fyrir sýningar á samtímalist.Árlega eru haldnar 10-15 sýningar í sölum safnsins.
Forstöðumaður safnsins er Kristín G. Guðnadóttir, listfræðingur
Aðrir starfsmenn eru Ingiríður Óðinsdóttir, Steinunn Helgadóttir og Björk Konráðsdóttir
Listráð safnsins skipa auk forstöðumanns: Hulda Stefánsdóttir og Ólafur Gíslason.
Rekstrarstjórn safnsins skipa: Ingibjörg Guðmundsdóttir Eyrún Valsdóttir og Guðmundur Gunnarsson.
Reglugerð fyrir Listasafn Alþýðusambands Íslands
1. gr.
Safnið heitir Listasafn Alþýðusambands Íslands (Listasafn ASÍ)
2. gr.
Safnið er eign Alþýðusambands Íslands. Safnið er stofnað samkvæmt ósk og að frumkvæði Ragnars Jónssonar forstjóra til minningar um Erlend Guðmundsson í Unuhúsi. Miðstjórn ASÍ fer með yfirstjórn þess.
3. gr.
Aðalhlutverk safnsins skal vera.
a) að varðveita og hafa til sýnis fyrir almenning listaverk þau, sem Ragnar Jónsson gaf ASÍ til eignar hinn 17. júní 1961 svo og önnur listaverk, safnið á og kann að eignast
b) koma íslenskri myndlist á framfæri við almenning
c) reka sýningarsal og skylda starfsemi.
Safnið skal í hvívetna stuðla að því að íslensk myndlist nái til almennings með
sýningum sem víðast og er heimilt að eiga samvinnu við aðra aðila í því sambandi.
4. gr.
Starfsfé safnsins eru skatttekjur frá verkalýðsfélögum innan ASÍ eins og þær eru
ákveðnar í lögum ASÍ, framlög til safnsins af hálfu hins opinbera og eigin
sjálfsaflatekjur. Reikningar safnsins skulu gerðir upp árlega miðað við almanaksárið
og endurskoðaðir af kjörnum endurskoðendum ASÍ og löggiltum endurskoðanda þess.
Þeir skulu ásamt fjárhagsáætlun næsta árs lagðir fyrir miðstjórn og ársfund ASÍ.
5. gr.
Daglega stjórn safnsins í umboði miðstjórnar annast rekstrarstjórn. Hún skal skipuð
þrem mönnum, sem miðstjórn kýs til tveggja ára í senn.
Miðstjórn ræður forstöðumann safnsins. Rekstrarstjórn hefur umsjón með daglegum
rekstri og ber ábyrgð á fjármálum þess gagnvart miðstjórn og tekur endanlegar
ákvarðanir í umboði hennar um allan rekstur safnsins. Fyrir lok nóvember ár hvert skal rekstrarstjórn leggja nákvæma rekstraráætlun fyrir miðstjórn sem hún skal afgreiða.Allar ákvarðanir, sem fela í sér miklar breytingar á starfsemi safnsins, skulu þó bornar undir miðstjórn til samþykktar eða synjunar.
6. gr.
Við safnið skal starfa þriggja manna listráð. Forstöðumaður safnsins skal eiga sæti í
ráðinu og vera formaður þess. Auk þess skipar miðstjórn tvo listfræðinga til
setu í ráðinu til tveggja ára í senn.
Miðstjórn ASÍ skal ákveða þóknun listfræðinganna fyrir setu í ráðinu.
Listráðið skal vera rekstrarstjórn og miðstjórn til ráðuneytis um allt sem lýtur
að listfræðilegum málum. Allar umsóknir um afnot af sýningarsal safnsins skulu
lagðar fyrir listráðið. Þá skal listráðið fjalla um sýningar, sem efnt er til á vegum
safnsins hvort sem er í sýningarsal þess eða annars staðar. Ef til greina kemur að
safnið þiggi listaverk að gjöf eða kaupi listaverk skal slíkt lagt fyrir listráðið.
7. gr.
Safnið skal starfrækja fræðslu- og kynningarsýningar um íslenska myndlist
utan safnsins, á vinnustöðum, í húsakynnum verkalýðsfélaga eða opinberra stofnana.
Rekstrarstjórn skal ákveða gjaldskrá fyrir þessa þjónustu.
8. gr.
Breytingar á reglugerð þessari verða aðeins gerðar af ársfundi Alþýðusambands Íslands.
9. gr.
Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.