Vinnustaðasýningar - Listin út til fólksins

 Um árabil hefur Listasafn ASÍ staðið að vinnustaðasýningum í stofnunum og fyrirtækjum. Sýningar þessar gera starfsemi safnsins frábrugðna starfsemi annarra listasafna og þjóna því markmiði safnsins að sem flestir fái notið myndlistar, einnig þeir sem ekki sækja söfn og sýningar að staðaldri.

Þegar fyrirtæki óskar eftir sýningu á verkum safnsins kemur starfsmaður safnsins á vinnustaðinn og skoðar möguleika á staðsetningu verka og gerir síðan tillögu að sýningu.

Starfsfólk safnsins sér síðan um flutning, upphengingu og frágang verka á vinnustað.
Þau verk sem safnið lánar út á vinnustaðasýningar eru fjölbreytt að gerð, þó mest olíumálverk og grafík, eftir fjöldann allan af listamönnum.

Greitt er fast gjald fyrir hvert verk pr. mánuð. Einnig er greitt fyrir flutning og upphenginu/niðurtöku verka skv. taxta.

Verkin eru lánuð til 6 mánaða í senn, með möguleika á framlengingu sé þess óskað.

Vinsamlegast leitið nánari upplýsinga hjá forstöðumanni í síma 511-5353 eða 896-6559