Current exhibitions

14. apríl til 13. maí 2012

Listahátíð í Reykjavík 2012

ÁSMUNDARSALUR: Rúrí/Future Cartography/Kortlagning framtíðar Í mörgum verka sinna hefur Rúrí unnið með framtíðar fornleifafræði sem megin inntak, en önnur viðfangsefni varða meðal annars jafnvægi í náttúru jarðar og einnig huglæg gild. Í nýjustu verkum sínum tekst hún á við framtíðar kortlagningu. Í samvinnu við Gunnlaug M. Einarsson landfræðing, hefur hún dregið upp landakort er varða framtíðina og byggja á spám um yfirvofandi breytingar á lögun landa. Samstarfsmaður hennar við útfærslu kortanna er María Rún Jóhannsdóttir. ARINSTOFA: IS-98 /A View from the Other Side Kvikmyndin skráir myndrænt hrörnun fiskmarkaðs í Turku í teiknaðri mynd (70 mín.) Verkinu er ætlað að vera spegilmynd af þeim breytingum sem eru að eiga sér stað í norður Evrópu. GRYFJA: WOOLOO: Wooloo / New Life Horbelev Listhópurinn frumsýnir í Listasafni ASÍ heimildarmyndina New Life Horbelev . Myndin lýsir viðbrögðum íbúa smábæjar í Danmörku þegar listamennirnir fengu þau til að gera sameiginlegan skúlptúr út sjónvörpum sínum og nota þann tíma sem sparaðist frá sjónvarpsglápi í að umgangast meira. Forstöðumaður Listasafns ASÍ fetar í fótspor bæjarbúa og leggur til sýningarinnar eigið sjónvarp og sófa. Sýningarnar eru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Sýningarstjóri er Jonatan Habib Engqvist. Sjá nánar á: www.indpendentpeople.is