Guðrún Vera Hjartardóttir, Helga Óskarsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir – STJARNA ER FÆDD
12. júní 2004 – 4. júlí 2004
Guðrún Vera Hjartardóttir, Helga Óskarsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir
Stjarna er fædd / A Star Is Born
„Helgidómur“
Í Ásmundarsal sýna Guðrún Vera Hjartardóttir, Helga Óskarsdóttir og Ingibjörg Magnúsdóttir verk sín undir yfirskriftinni Helgidómur.
viss um að tíminn
er guðslangur dagur
en ekki afstæður frestur frá gálganum
viss um að meyrna
hvert sinn sem stíflan
í brjóstinu brestur
viss um að sigrast á hrokanum
og hráaslagi hugans
viss um að vaxa
Guðrún Vera Hjartardóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1991 og frá AKI – Akademie voor Beeldende Kunst í Hollandi árið 1994.
Helga Óskarsdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1997 og lauk MA-prófi frá Chelsea College of Art and Design í London árið 1998.
Ingibjörg Magnúsdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands (Listaháskóla Íslands) árið 2000. Árið 1999 stundaði hún nám við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn og síðar sviðshönnun við Figuratif Teaterskole í Fredrikstad í Noregi á árunum 2001–2002.
Listamennirnir hafa allar haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér á landi og víðs vegar um heiminn.