Hadda Fjóla Reykdal
09. ágúst 2013 – 01. september 2013
Hadda Fjóla Reykdal
Hadda Fjóla Reykdal sýnir málverk í Ásmundarsalur og Arinstofu sem unnin eru út frá hughrifum úr íslenskri og sænskri náttúru. Í verkum sínum fjallar Hadda um það hvernig litirnir breytast eftir veðri og vindum, nálægð, fjarlægð og birtu.
Verkin eru öll án titils, en ég vinn þau út frá skissunum mínum sem ég hef niðurskrifaðar í bók. Skissubókina hef ég alltaf með mér þegar ég er úti í náttúrunni og í hana skrifa ég í stað þess að teikna. Hver skissa stendur eins og eins konar ljóð og á sinn stað í huga mér. Ég þarf ekki annað en að lesa yfir skissurnar, eða ljóðin, til þess að muna hvaðan ég fékk hugmyndirnar og hvernig upplifunin kviknaði. Verkin eru því flest tengd ákveðnum stað og stund.
Skissa
Þjórsárdalur
rigning og þoka
ljós ljósgrátt
ljósgrátt
ljós mosagrænt
hvítt
ljóst vikur… lítið