Hildur Hákonardóttir – „ÞAR SEM ÉG BJÓ OG ÞAÐ SEM ÉG LIFÐI FYRIR“
17. september – 9. október 2011
Hildur Hákonardóttir – „Þar sem ég bjó og það sem ég lifði fyrir“
Hildur hefur með myndlist sinni, þátttöku í kvenréttindabaráttu og virkri menningarpólitík fetað sinn eigin veg í íslenskri listasögu og markað þar djúp spor.
Fyrstu einkasýningu sína hélt Hildur í Gallerí SÚM í Reykjavík, en vert er að geta þess að hún er eina konan sem gegndi formennsku hreyfingarinnar. Á ferli sínum hefur hún tekið þátt í á fjórða tug samsýninga hér heima og erlendis, auk þess að skrifa bækur og greinar, setja upp sýningar og gegna stöðu forstöðumanns Byggða- og Listasafns Árnessýslu. Hún hefur kennt við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, stýrt sama skóla og tekið þátt í að setja á fót nýlistadeild hans í samstarfi við Magnús Pálsson.
Á sýningunni í Listasafni ASÍ eru sýnd nokkur eldri verk listakonunnar sem ekki hafa verið sýnd að undanförnu, auk nýs verks sem Hildur gerði sérstaklega fyrir Gryfjuna.
Dagskrá
Laugardaginn 25. september fór fram rabbfundur í tengslum við sýninguna í Ásmundarsal, þar sem rætt var um Henry David Thoreau, líf hans og verk, og stöðu þeirra í samtímanum. Meðal þátttakenda voru Hildur Hákonardóttir og Elísabet Gunnarsdóttir.
Sýningarstjórar:
Unnar Örn Jónasson Auðarson og Huginn Þór Arason