Þorri Hringsson – SJÓNDEILDARHRINGUR TILVERUNNAR

09. janúar 2010 til 31. janúar 2010

Þorri Hringsson - Sjóndeildarhringur tilverunnar

Þorri Hringsson útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1989 og frá Jan van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi 1991. Hann hefur haldið margar einkasýningar hér heima og í Hollandi og tekið þátt í samsýningum.

Þorri hefur kennt við Myndlistarskóla Reykjavíkur frá árinu 1992 en að auki hefur hann lagt stund á blaðamennsku og myndasögugerð og hann var meðal annars í ritstjórn myndasögutímaritsins GISP.

Verk eftir Þorra Hringsson eru í eigu opinberra safna jafnt sem einkasafna á Íslandi og annarstaðar í Evrópu, t.d. Listasafns Íslands og Listasafns Reykjavíkur.

Á sýningunni í Ásmundarsal verða málverk sem listamaðurinn hefur málað í Aðaldal á síðustu þremur árum.

Previous
Previous

Guðrún Gunnarsdóttir - AÐ MUNA SINN FÍFIL FEGRI

Next
Next

Jóhannes Dagsson – FIRNINDI