Þóra Sigurðardóttir og Sólrún Sumarliðadóttir – TEXTI, GRAFÍK OG POTTHLJÓÐ

2. maí – 17. maí 2009

Þóra Sigurðardóttir og Sólrún Sumarliðadóttir

Þóra Sigurðardóttir

Texti, teikningar og grafík

Verkin fjalla um gólf og veggi húss; snertingu við rými og tíma, hreyfingu og kyrrstöðu.

Þóra Sigurðardóttir stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og framhaldsnám við Det Jyske Kunstakademi í Danmörku. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og haldið einkasýningar hér heima og erlendis um árabil.

Verk Þóru eru í eigu einkasafna og opinberra safna, þar á meðal Listasafns Íslands, Listasafns ASÍ og safna á Norðurlöndum. Samhliða myndlistinni hefur hún starfað við listkennslu, skólastjórn, verkefna- og sýningarstjórn, auk þess að vinna teikningar fyrir bækur og tímarit.

🌐 www.this.is/thora
🌐 www.nyp.is

Sólrún Sumarliðadóttir

Hljómrými í Gryfju; potthljóð

Verkið er unnið út frá leik með mjóa vatnsbunu í potti og þeim yfir- og undirtónum sem þar myndast; dropatali, málmi, gleri og fingurgómum.

Sólrún Sumarliðadóttir stundaði nám í sellóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Maastricht Conservatory í Hollandi. Hún lauk BA-gráðu í tónvísindum frá háskólanum í Utrecht og MA-gráðu í menningarfræðum frá Goldsmiths College í London árið 2006.

Sólrún er meðlimur hljómsveitarinnar Amiina og hefur um árabil samið tónlist, unnið hljóðritanir og komið fram á tónleikum og listahátíðum víða um heim. Hún starfar einnig reglulega með öðrum tónlistarmönnum, bæði íslenskum og erlendum.

🌐 www.amiina.com

Previous
Previous

Aðalheiður Valgeirsdóttir - TÍMALJÓS

Next
Next

Keiko Kurita - TREE/SLEEP