Reykjavíkurhöfn í íslenskri myndlist – KVIKAR MYNDIR

24. nóvember 2007 – 21. desember 2007

Kvikar myndir – Reykjavíkurhöfn í íslenskri myndlist

Fáir staðir hafa verið jafn afgerandi og mótandi í borgarmynd Reykjavíkur og Reykjavíkurhöfn, sem nú er 90 ára. Sýningin Kvikar myndir tengir stöðuga þróun hafnarinnar við túlkanir ólíkra myndlistamanna. Myndir hafnarinnar eru myndir á róti — og tengsl listamanna við staðinn eru enn lifandi.

Höfnin hefur haft sterk mótandi áhrif á fjölda myndlistarmanna og sýningin varpar ljósi á þessi tengsl með verkum sem spanna ólíka miðla og tímabil. Meðal verka á sýningunni eru málverk eftir Þórarinn B. Þorláksson af fyrsta skipsbruna í Reykjavíkurhöfn, eitt af fyrstu kvikmyndaverkum Dieter Roth sem tekið var að hluta til í Slippnum, og röð sjálfsmynda eftir Magnús Þór Jónsson (Megas), unnin á meðan hann starfaði sem verkamaður við Faxaskála.

Sýningin dregur fram höfnina sem síbreytilegan vettvang — stað þar sem vinna, list og daglegt líf fléttast saman — og sýnir hvernig myndlistarmenn hafa brugðist við þessum umbreytingum í verkum sínum.

Listamenn sem eiga verk á sýningunni eru:

Ásgrímur Jónsson, Baldvin Björnsson, Birgir Andrésson, Dieter Roth, Emiliano Monaco, Hanna Styrmisdóttir, Haraldur Jónsson, Hulda Hákon, Hörður Ágústsson, Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefánsson, Karl Kvaran, Magnús Tómasson, Magnús Þór Jónsson (Megas), Margrét H. Blöndal, Nína Tryggvadóttir, Ólafur Elíasson, Ólöf Björnsdóttir, Snorri Arinbjarnar, Svava Björnsdóttir og Þórarinn B. Þorláksson.

Previous
Previous

Sigurður Örlygsson - UM KONU

Next
Next

Sari Maarit Cedergren – HVIÐA