Svava Björnsdóttir og Inga Ragnarsdóttir – TÍMINN FER EKKI – HANN KEMUR

3. september – 19. september 2010

Svava Björnsdóttir og Inga Ragnarsdóttir

Tíminn fer ekki – hann kemur

„Tíminn fer ekki, hann kemur“
(grænlenskt spakmæli)

Sýningin Tíminn fer ekki – hann kemur er tilraun til að tengjast framrás tímans á myndrænan hátt. Efni, rými og hreyfing eru sá veruleiki sem við skynjum í dagsins önn og það er ögrandi viðfangsefni að gera grein fyrir því hvernig tíminn tengist rýminu og hver birtingarform hans geta verið.

Í lok áttunda og byrjun níunda áratugar síðustu aldar voru Svava Björnsdóttir og Inga Ragnarsdóttir báðar við höggmyndanám í Listaakademíunni í München. Þar fylgdust þær náið að, síðar einnig sem starfandi myndlistarmenn, en hafa þó aldrei áður sýnt saman fyrr en nú á þessu ári.

Það var því spennandi verkefni fyrir þær að stilla saman strengi, fyrst í Bryggjusal Edinborgarhússins á Ísafirðisumarið 2010
(29. júlí – 19. ágúst)
og síðan nú í Ásmundarsal við Freyjugötu.

Segja má að verk Svövu og Ingu séu skyld að anda, þótt efniviðurinn sé ólíkur. Myndmál þeirra er af sama bergi brotið, en þær nýta sér rými, form, efni og liti hvor á sinn persónulega hátt. Verkin á sýningunni eru fyrst og fremst þrívíddarverk, unnin á árinu 2010.

Listamennirnir

Svava Björnsdóttir (f. 1952) nam við École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París og Akademie der Bildenden Künste í München, þaðan sem hún útskrifaðist árið 1984 með diplómgráðu. Verk Svövu er að finna í öllum helstu listasöfnum landsins, auk safna í Þýskalandi. Hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis og haldið yfir tuttugu einkasýningar.

Inga Ragnarsdóttir (f. 1955) nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München, þaðan sem hún útskrifaðist árið 1987 með diplómgráðu. Inga hefur starfað jafnt í Þýskalandi og á Íslandi og sýnt víða. Verk hennar er að finna í helstu söfnum, meðal annars Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og Bæverska ríkislistasafninu.

🌐 www.ingaragnarsdottir.com

Previous
Previous

Anna Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttir - SPOR

Next
Next

Verk úr safneigninni – LITADÝRÐ