Michael Mørk og Tumi Magnússon – Á STAÐNUM
30. nóvember 2013 til 22. desember 2013
Báðir listamennirnir ganga oftast út frá eigindum staðarins í verkum sínum. Michael Mørk sýnir verk sem liggja á milli þess að vera annars vegar málverk og húsgögn, og hins vegar málverk og ljósmynd. Verkin eru geometrískt uppbyggð og leitast við að endurspegla rýmið og gera það að virkum hluta verkanna.
Tumi Magnússon sýnir ljósmyndaverk sem fást við afar hversdagsleg fyrirbæri. Þau eru unnin og sett upp á rökréttan en óhefðbundinn hátt. Hann sýnir einnig videoverk sem tengjast ljósmyndunum, en nálgast viðfangsefnið frá öðru sjónarhorni.