Valgerður Hauksdóttir – ÁTTTIR OG ÁTTLEYSUR
29. ágúst – 20. september 2009
Valgerður Hauksdóttir – Áttir og áttleysur
Einkasýning í öllum sýningarsölum safnsins.
Valgerður Hauksdóttir sýnir ný verk unnin á árunum 2007–2009. Á sýningunni eru ljósmyndir og grafíkverk, þar á meðal þurrnálsteikningar, ætingar og verk unnin með blandaðri tækni.
Titill sýningarinnar vísar til stöðugrar leitar mannsins að skynjun og túlkun innri og ytri veruleika.
Listakonan segir sjálf:
*„Í upphafi hafði ég í hyggju að sýna bæði teikningar, grafík og ljósmyndir, en teikningarnar þróuðust í að verða þurrnálsteikningar og hluti af grafíkverkunum. Þetta eru hálfgerðar takt- (rythma) teikningar, það er bein tenging handar og túlkunar – nokkurs konar skrift þar sem þurrnálin gerir það að verkum að teikningin verður óheftari.
Teikningin er þannig frekar eins og beint framhald af hendinni og maður „þvælist minna fyrir sjálfum sér“, þar sem ekki er hægt að sjá almennilega það sem hefur verið teiknað fyrr en platan er þrykkt. Það mætti líkja þessu við að „framkalla myndirnar“ í þrykkingunni.“*
Valgerður Hauksdóttir er menntuð grafíklistakona, sérhæfð í steinþrykki og ætingu. Hún nam myndlist í Bandaríkjunum og lauk meistaragráðu árið 1983 og bachelorgráðu árið 1981.
Frá loknu námi hefur hún starfað við myndlist og á árunum 1984–2003 kenndi hún listgrafík við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, síðar Listaháskóla Íslands, þar sem hún gegndi jafnframt ýmsum stjórnunarstörfum. Hún hefur einnig starfað sem gestakennari og fyrirlesari við háskóla í Evrópu og Bandaríkjunum og tekið þátt í nefnda- og stjórnarstörfum á vegum íslenskra myndlistarsamtaka.
Valgerður hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga, bæði á Íslandi og erlendis, og hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir verk sín. Verk hennar eru í eigu listasafna og opinberra stofnana á Íslandi og erlendis.