Ívar Valgarðsson - HRINGIR, HÁMARKSSTÆRÐ

07. mars 2009 til 29. mars 2009

Sýning Ívars samanstendur af fjórum áður ósýndum rýmisverkum. Þó þau séu ólík innbyrðis tengjast þau sjónrænt og formrænt á ýmsa vegu.

Verkin eru misstór og hefur hvert verk sitt afmarkaða rými. Stærsta staka verkið leggur undir sig allan stóra salinn en það minnsta er í glerborði.

Þetta er 21. einkasýning Ívars og sú fjórða sem hann heldur í Ásmundarsal síðan 1980.

Efnistök Ívars eru fjölbreytileg á sýningunni. Að þessu sinni notar hann; áherslupenna, innanhúss-málningu, neon og myndbönd.

Previous
Previous

Bjargey Ólafsdóttir - STUNGIÐ AF TIL SUÐUR - AMERÍKU

Next
Next

Þuríður Sigurðardóttir - Á MILLI LAGA