Erling Klingenberg og David Diviney - Rap
ERTU AÐ HORFA Á MIG
13. nóvember 2004 til 05. desember 2004
„Ertu að horfa á mig / Are you looking at me“.
Undanfarin ár hefur Erling Þ.V. Klingenberg verið að einblína á heim myndlistarinnar, oft með sjálfan sig að vopni, innan um goðsagnir, drífandi öfl og áhrifavalda þess umhverfis. Hann er upptekinn af yfirborðum samfélags og lista og alls þess sem því tilheyrir, kafar undir eða inn í yfirborðið og kemur stundum upp á nýjum, jafnvel ókunnum stað.
Á sama stað ávarpa mikið af verkum David Divineys og spyrja spurninga út í þá heima sem mennirnir hafa skapað. Hann hefur oft einblínt á heim „veiðimannsins“, heim sem gjarnan hefur á sér ímynd helgarferðar „aftur til náttúrunnar“. Oft skoðar hann þetta sem athvarf í búningi túristans frekar en afturhvarf til frumbyggjans.
Sýningin „Ertu að horfa á mig“ mun sameina verk þeirra Erlings Þ.V. Klingenberg og David Diviney í naflaskoðun, kryddaðri sjálfshæðni þar sem listamennirnir og verk þeirra verða áhorfendur og þátttakendur í eðli sértækra heima sem hluta einhvers stærra.