Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Hjörtur Marteinsson – UMHVERFIS DJÚPAN FJÖRÐ

05. október 2013 – 27. október 2013
Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Hjörtur Marteinsson – Umhverfis djúpan fjörð

Sýning á verkum Guðbjargar Lindar Jónsdóttur og Hjartar Marteinssonar.

Laugardaginn 5. október 2013 klukkan 15 opna Guðbjörg Lind Jónsdóttir og Hjörtur Marteinsson sýninguna Umhverfis djúpan fjörð í Listasafn ASÍ.

Á sýningunni leiða þau sýningargesti í ferðalag um kunnar jafnt sem ókunnar slóðir. Viðfangsefni sýningarinnar er landið og breytilegar birtingarmyndir þess, annars vegar að degi til og hins vegar að nóttu.

Sýningin er afrakstur margra leiðangra listamannanna um Vestfjarðakjálkann en vísar einnig til ferða fyrri tíðar manna sem fetuðu sömu slóðir fyrir löngu og skynjuðu landið ef til vill með allt öðrum hætti. Verk listamannanna beina sjónum að óútskýranlegum sem og raunsönnum fyrirbærum náttúrunnar, þar sem allt er breytingum undirorpið.

Guðbjörg Lind Jónsdóttir er fædd á Ísafjörður 1961 og hefur haldið fjölda sýninga hér heima og erlendis. Í verkum sínum hefur hún lengi fjallað um kyrrðina og fjarveru mannsins í dularfullu og oft óræðu landslagi, í eyjum eða upp við fossa. Í málverkum hennar er fólgin ferð á vit afkima heimsins þar sem maðurinn skynjar hið upphafna í einfaldleikanum sjálfum.

Hjörtur Marteinsson er fæddur í Reykjavík árið 1957. Hann hefur oft í verkum sínum fléttað vísindi og furður fyrri alda saman við sýn nútímamannsins á heiminn, í bland við trúarlega skynjun hans á duldum fyrirbærum tilverunnar.

Hjörtur hefur einnig fengist við ritstörf og gefið út ljóðabækurnar Ljóshvolfin (1996) og Myrkurbil (1999), auk skáldsögunnar AM 00, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2000.

Sýningin stendur til sunnudagsins 27. október 2013 og er Listasafn ASÍ opið frá klukkan 13–17 alla daga vikunnar nema mánudaga, en þá er safnið lokað. Aðgangur er ókeypis.

Sýningin er tileinkuð minningu Inga Ruth Olsen (19.6. 1931 – 6.8. 2013).

Previous
Previous

Katrín Elvarsdóttir – HORFIÐ SUMAR

Next
Next

Ívar Valgarðsson - VARANLEGT EFNI (SNJÓBOLTI)