Hildigunnur Birgisdóttir – ÞAÐ VERÐUR ÞEIM AÐ LIST SEM HANN LEIKUR
15. janúar – 6. febrúar 2011
Hildigunnur Birgisdóttir – Það verður þeim að list sem hann leikur
Á sýningu sinni í Gryfju myndgerir Hildigunnur áframhaldandi rannsókn á tilgangi og tilgangsleysi sem leiðir af sér jöfnu. Innan jöfnunnar eru einingar sem unnar hafa verið í hjáverkum undanfarin ár, undir formerkjum sýningarinnar Það verður þeim að list sem hann leikur.
Leikir og kerfi eru sjaldan langt undan í listsköpun Hildigunnar. Kerfin eiga rætur sínar að rekja til eðlisfræðilegra fyrirbæra og heimspekilegra vangaveltna um hringrásir og heimskerfi, en lúta jafnframt lögmálum og fagurfræði leikja og spila. Í leikjum eru reglurnar þó aldrei fullkomnar: einhver svindlar, frávik eiga sér stað og sum kerfin ganga alls ekki upp…
Hildigunnur útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og hefur síðan sýnt verk sín hér heima og erlendis. Hún hefur jafnframt verið virk á ýmsum sviðum listalífsins, meðal annars stýrt sýningum á borð við Grasrótarsýningu Nýlistasafnsins árið 2005 og sýningaröð vesturveggs Skaftfells sumarið 2006. Þá hefur hún setið í ritstjórn myndlistaritsins últramegatúrbo.
Hildigunnur var framkvæmdastjóri Skaftells menningarmiðstöðvar á Seyðisfirði árið 2006 og síðar einn af stofnendum Útúrdúrs, bókverkaverslunar og útgáfu, árið 2008.