Hlynur Helgason – 63 DYR LANDSPÍTALI VIÐ HRINGBRAUT

6. janúar 2007 – 28. janúar 2007

Landspítalinn við Hringbraut hefur allt frá fjórða áratug síðustu aldar verið þungamiðja í samfélagsþjónustu Íslendinga. Flestir landsmenn koma þar við einhvern tíma á lífsleiðinni, hvort sem er við fæðingu eða í aðdraganda andláts. Sterkar og oft sársaukafullar tilfinningar tengjast því að ganga þar inn, en iðulega er brottförin gleðiríkari.

Það var þetta sem vakti áhuga Hlyns Helgasonar á að skrásetja flestar dyr stofnunarinnar. Um þær ganga sjúklingar, gestir og starfsfólk inn á spítalann og út úr honum á ný. Spítalinn hefur vaxið og þróast í gegnum tíðina og með því að leggja áherslu á inngangana vonast listamaðurinn jafnframt til að túlka fjölbreytilegar áherslur í íslensku samfélagi frá um 1930 fram til vorra daga.

Niðurstaða þessara hugmynda er listaverkið 63 dyr Landspítalans á lóð hans við Hringbraut. Skrásetning listamannsins birtist í mörgum miðlum: dyrnar eru sýndar skipulega í kvikmynd og ljósmyndum, en einnig nýtir hann teikningu og málverk á skematískan hátt í tilraun sinni til að lýsa spítalanum og fjölbreytileika hans.

Hlynur hefur á undanförnum árum verið upptekinn af tilraunum til að túlka á listrænan hátt áherslur og áferð borgarinnar. Margir þekkja til verka hans í Listasafni Íslands árið á undan, þar sem hann nýtti kvikmyndamiðilinn til að skrásetja annars vegar fábreytilegan garð í miðborginni og hins vegar dæmigerða stofu í íbúð í Prag. Einnig má nefna verk hans í Nýlistasafninu árið 2004, þar sem hann túlkaði göngu niður Klapparstíginn í kvikmynd og ljósmyndum.

Hlynur lauk námi frá Myndlista- og handíðaskólanum árið 1986 og MA-gráðu frá Goldsmiths College í London árið 1994. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum víða um heim.

Nánari upplýsingar um feril hans má finna á: http://www.tacticalart.net

Previous
Previous

Jóhann Ludwig Torfason – NÝ LEIKFÖNG

Next
Next

Kristinn Már Pálmason – MÁLVERKAINNSETNING