Jóhann Ludwig Torfason – NÝ LEIKFÖNG
6. janúar 2007 – 28. janúar 2007
Jóhann Ludwig Torfason – Ný leikföng
Á sýningunni eru tölvugerð málverk af skálduðum leikföngum fyrir hina meðvituðu yngstu kynslóð. Jafnframt sýnir Jóhann silkiþrykktar þrautir.
Efnistök hans eru ramm-pólitísk í eðli sínu, en viðfangsefnin sem hann fjallar um í list sinni tengjast fyrst og fremst mannlegri tilveru, bæði í þjóðlegu og alþjóðlegu samhengi. Hvort sem hann tekur fyrir kynhlutverk og kynvitund, þjóðlega sveitamennsku eða alþjóðlega tískustrauma, hungursneyð eða ofbeldisdýrkun — hörð málefni og stórar spurningar — er framsetningin ávallt ákveðin og ögrandi, mitt á milli hins hversdagslega og hins kómíska.
Með þessum hætti bregður hann upp myndum sem höggva nærri kviku sjálfsvitundar okkar og varpa ljósi á þau viðkvæmu samfélagsmálefni sem hann tekst á við í verkum sínum.
Jóhann Ludwig Torfason fæddist í Reykjavík árið 1965. Ný leikföng er tíunda einkasýning hans, en hann hefur jafnframt tekið þátt í fjölda samsýninga, nú síðast á Listasafni Íslands á sýningunni Málverkið eftir 1980.
Sýningin er samstarfsverkefni Jóhanns og fyrirtækisins Pabba kné ehf., sem framleiðir verkin.
Nánari upplýsingar: www.homepage.mac.com/johanntorfason