Hye Joung Park – STUNGUR
2. júní 2007 – 24. júní 2007
Hye Joung Park er listamaður frá Suður-Kóreu. Hún lauk námi frá Listaháskóla Íslands árið 2005 og hefur starfað við myndlist síðan. Þetta er önnur einkasýning hennar á Íslandi, en undirbúningur hennar hefur staðið yfir frá því snemma árs 2006.
Í innsetningunni má greina ummerki gjörnings sem hefur átt sér stað yfir langan tíma. Kunnuglegir heimilishlutir hafa fengið á sig annarlegan blæ í kerfisbundinni meðhöndlun listamannsins. Segja má að sýningin sé framhald af síðustu tveimur sýningum hennar, þar sem hún hefur fengist við skynjun á tíma, rými og upplifun einstaklingsins á eigin hlutskipti.
Iðjusemi er dyggð, því tíminn er gersemi sem má aldrei fara til spillis. Hann er gerður úr fínum þræði sem hægt er að sauma í yfirborð hluta, líkt og mynd af liðnum atburði eða ævarandi ósk um velfarnað í framtíðinni.
Nauðsynlegt er að meðhöndla hann af festu, en jafnframt af nærgætni.
Því á hverri stundu getur hann skroppið úr höndum okkar og horfið aftur til náttúru sinnar — í óreiðukenndan flóka þar sem enginn kann skil á því hvert hann stefnir eða hvort hann stendur í stað.