Inga Þórey Jóhannsdóttir – MÁLVERK OG MYNDASTYTTUR

15. október – 6. nóvember 2011

Inga Þórey Jóhannsdóttir – Málverk og myndastyttur

Á sýningunni umbreytir Inga Þórey safninu í annan viðkomustað á einu og sama ferðalagi. Með innsetningu málverka og myndastytta gerir hún tilraunir með spennu augnabliksins, spennu biðtímans og þá togstreitu sem býr í efninu sjálfu.

Hugrenningartengsl verka hennar beinast að stöðugum togkrafti, draumkenndum stærðarhlutföllum og æskutengdum litum, um leið og skynja má nærveru frumefnanna. Búnaður farartækja – segl og hreyflar – birtist og beislar staðvinda salarins með ákveðnum hætti. Fyllt vatnsílát eru falin í vegg sem skiptir rýminu í tvo hluta; lokaðan og aðgengilegan.

Í myndlist sinni leitar Inga Þórey gjarnan að bilinu milli svefns og vöku, þess sem leynist í undirvitundinni eða á földum, huglægum stöðum. Verkin kalla fram ástand þar sem tími, efni og skynjun eru í stöðugri hreyfingu og óvissu.

Previous
Previous

Sigtryggur Bjarni Baldvinsson – MÓÐAN GRÁA

Next
Next

Þorbjörg Þorvaldsdóttir – MÓDEL OG INNSETNINGAR