Sigtryggur Bjarni Baldvinsson – MÓÐAN GRÁA
12. nóvember 2011 – 11. desember 2011
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson – Móðan gráa
Sýningin í Listasafn ASÍ samanstendur af olíumálverkum, vatnslitamyndum og tölvuunnum ljósmyndum af því grótta fljóti, Jökulsá á Fjöllum.
Í olíuverkunum eru blæbrigði lita og forms fljótsins dregin fram og gerð tilraun til að endurvarpa einhverju af dimmri og þungri orku vatnsins. Í vatnslitaverkunum er hrynjandi árinnar dregin fram með skýrri afmörkun forma og aukinni þéttleika lita.
Ljósmyndaverkin bera sameiginlegan titil eða yfirskrift, þ.e.: „Jökulsárárar.“ Við speglun stafrænnar ljósmynda eru dregnir fram, eða dragast fram, svipir ólíklegustu kvikinda og verkin tvístíga á mörkum hins náttúrulega og hins yfirnáttúrulega.
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson er menntaður við Myndlistaskólinn á Akureyri, Myndlista- og handíðaskóli Íslands, National Supérieur des Arts Plastiques og hann útskrifaðist frá École des Arts Décoratifs í Strasbourg árið 1994. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum víða um landið.
Sjá nánar á:
http://sigtryggurbjarni.is/