Klessulistarhreiðrið – LISTVINASALURINN 1951–1954

5. apríl 2008 – 4. maí 2008

Klessulistarhreiðrið – Listvinasalurinn 1951–1954

Listvinasalurinn var stofnaður árið 1951 af Birni Th. Björnssyni og Gunnari Sigurðssyni í húsnæði Ásmundur Sveinssonvið Freyjugötu 41, þar sem nú er Listasafn ASÍ.

Til að minnast þessa mikilvæga kafla í sögu hússins — og íslenskrar myndlistar — var sýningin Klessulistarhreiðrið opnuð í Listasafni ASÍ 5. apríl sl. Titill sýningarinnar er fenginn úr blaðaskrifum um Listvinasalinn og óhætt er að fullyrða að engin lognmolla hafi ríkt í kringum starfsemi hans.

Listvinasalurinn var fyrsta gallerí sinnar tegundar í Reykjavík og afar áhrifamikill þátttakandi í listalífi borgarinnar þau ár sem hann var starfræktur. Stjórnendur hans lögðu áherslu á nútímalist, einkum geometríska og abstrakta myndlist. Ekki voru allir jafn hrifnir af þessari „nýju“ list, og umræðurnar urðu oft heitar.

Flestir listamannanna sem sýndu í salnum voru ungir og íslenskir, en metnaður rekstraraðila var mikill. Athyglisvert er að í Listvinasalnum voru einnig sýnd verk eftir alþjóðlega listamenn á borð við Jean Arp, Picasso, Braque og Kandinsky, sem Hörður Ágústsson flutti heim frá París í farangri sínum.

Listvinasalurinn var ekki einungis sýningarvettvangur. Þar voru haldin lífleg kynningarkvöld þar sem rætt og rifist var um myndlist, lesið upp úr óútkomnum verkum ungra rithöfunda og flutt metnaðarfull tónverk. Einnig voru þar kvikmyndakynningar, fyrirlestrar um listasögu og heimspekilegar umræður. Kynningarkvöldin urðu svo vinsæl að þau sprengdu utan af sér rýmið og þurfti að flytja þau í stærra húsnæði, meðal annars í Leikhúskjallarann og Stjörnubíó.

Árið 1952 var haldin ljósmyndasamkeppni áhugaljósmyndara. Hluti myndanna hefur varðveist og veitir innsýn í umhverfi Listvinasalarins, fólkið í landinu og tímabilið almennt á fyrstu árum sjötta áratugarins.

Á sýningunni Klessulistarhreiðrið má sjá verk margra þeirra listamanna sem sýndu í Listvinasalnum. Þar á meðal eru málverk eftir Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason, Nínu Tryggvadóttur og Karl Kvaran. Mörg verkanna koma úr safni Gunnars Sigurðssonar, annars stofnanda Listvinasalarins, og er þetta fágætt tækifæri til að skoða þau.

Sýningarstjórar: Kristín G. Guðnadóttir, Steinunn G. Helgadóttir og Gunnar Gunnarsson

Previous
Previous

Halldór Ásgeirsson og Paul-Armand Gette

Next
Next

Sigurður Örlygsson - UM KONU