Magnús Tómasson – DRASL
29. september 2007 – 21. október 2007
Magnús Tómasson – DRASL
Ferðalag um skissubækur Magnúsar Tómassonar
Magnús Tómasson fæddist í Reykjavík árið 1943. Hann hélt sína fyrstu einkasýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins árið 1962, aðeins 19 ára gamall. Ári síðar hóf hann nám við Listaháskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan árið 1970 frá málaradeild og deildinni fyrir Mur- og Rumkunst.
Þrátt fyrir dvöl sína í Danmörku var Magnús í nánum tengslum við það sem var að gerast í íslenskri myndlist og var einn af stofnendum Gallerí SÚM þegar það var stofnað árið 1968.
Magnús Tómasson hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér á landi og erlendis. Hann hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar fyrir list sína og verk eftir hann eru meðal annars í eigu Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur. Flestir Íslendingar kannast einnig við verk hans Þotuhreiður, sem staðsett er við Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Á sýningunni í Listasafn ASÍ sýnir Magnús meðal annars skúlptúra og myndþrennur sem hann nefnir Formrím, auk myndaraðarinnar Samanburðarlandafræði. Hugmyndin að elstu myndinni í þeirri röð er frá árinu 1977.