Rabnsú - XGeó

27. október 2007 – 18. nóvember 2007

Rabnsú – XGeó

Ransu fæddist í Reykjavík árið 1967. Hann er menntaður meðal annars við AKI – Akademie voor Beeldende Kunst í Hollandi og National College of Art and Design í Dublin. Hann hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis.

XGeó eru málverk sem Ransu hefur þróað frá árinu 2000 og fela í sér tilraun til að sameina athafnarmálverk og strangflatarmálverk í eina skynheild, út frá öfgum hvors myndmáls fyrir sig. Þar mætast slettan og síendurtekið mynstrið, gjörningurinn og mantran, „happening“ og „non-happening“.

Sýningin í Listasafn ASÍ er sú þriðja í þessari sýningarröð. Sú fyrsta var haldin í Nýlistasafnið árið 2001 og önnur í Gerðarsafn árið 2004.

Previous
Previous

Sari Maarit Cedergren – HVIÐA

Next
Next

Magnús Tómasson – DRASL