Olga Bergmann – INNAN GARÐS OG UTAN

11. mars 2006 til 02. apríl 2006

Olga Bergmann – INNAN GARÐS OG UTAN

Olga Bergmann í samvinnu við hliðarsjálf hennar doktor B. hafa um nokkurt skeið krukkað í sameiningu í möguleika erfðavísindanna og hugsanleg áhrif þeirra á þróunarsöguna er til langs tíma er litið.

Á sýningunni – Innan garðs og utan – sem opnar í listasafni ASÍ laugardaginn 11. mars sýnir Olga Bergmann vettvangsathuganir á atferli dýra, postulínsstyttur og leynisafn.

Verkin á sýningunni fjalla um villta náttúru og tamda, dýralíf og hugmyndir um framtíðina sem meðal annars tengjast ævintýrum og óljósum minningum.

Previous
Previous

Anna Jóelsdóttir – Heima?/home?

Next
Next

Guðrún Marínósdóttir –EINSKONAR GRÓÐUR