Sara Vilbergsdóttir og Svanhildur Vilbergsdóttir – SYSTRASÖGUR
11. febrúar 2012 – 04. mars 2012
Sara Vilbergsdóttir og Svanhildur Vilbergsdóttir – Systrasögur
Systurnar Sara og Svanhildur hafa málað saman frá því síðsumars 2010. Þær kjósa að kalla hugmyndavinnuna og framkvæmdina „dúettmálun“ og fer hún þannig fram að þær vinna hugmyndir saman frá grunni, kasta þeim á milli sín, grípa og annaðhvort henda eða prjóna við.
Vinnuferlið hefst á samningaviðræðum um myndbyggingu og útfærslu, en síðan tekur við málunin sjálf, þar sem systurnar standa frammi fyrir sama striganum og mála tvíhent, ef svo má að orði komast.
Segja má að margar myndanna séu ævintýramyndir með sjálfsævisögulegum ívafi, þar sem yrkisefnin eru áhugamál þeirra og persónuleg reynsla. Í málverkunum má sjá systurnar í aðstæðum sem eru dæmigerðar fyrir þær sjálfar og líf þeirra, en jafnframt leita þær víða fanga, til dæmis í ævintýrum, og um leið bregður fyrir kunnuglegum minnum og myndum úr listasögunni.