Einar Falur Ingólfsson – SKJÓL
10. mars 2012 – 01. apríl 2012
Einar Falur Ingólfsson – Skjól
Á sýningunni eru þrjár tengdar ljósmyndaraðir. Í Arinstofu eru Skjól, Griðastaðir í Ásmundarsal og Svörður í Gryfju.
Öll verkin eru frá síðustu fjórum árum og þróuðust sem persónuleg viðbrögð við bankahruninu og aðstæðum tengdum því. Íslenskt hugvit og íslensk hönnun, þar sem notagildið skiptir höfuðmáli, og griðastaðir þeirra sem landið byggja eru meðal annars viðfangsefni verkanna.
Haustið 2008 var undirstöðunni kippt undan fótum margra; það var tími merktur óvissu. Þjóðin sagði þá skilið við meinta góðæristíð þar sem tengsl hennar við ræturnar höfðu trosnað. Listamaðurinn spurði sig hvernig hann gæti tekist á við þetta ástand með sínu miðli, ljósmyndinni, á persónulegan hátt.
Afrakstur þess ferlis birtist á sýningunni. Allar ljósmyndirnar eru teknar á stóra blaðfilmu. Svörður er röð verka þar sem rýnt er í jörð forfeðranna. Skjól eru í senn táknmynd þess skjólleysis sem þjóðin leitaði við haustið örlagaríka 2008, en jafnframt raunveruleg skjól, reist með notagildi að leiðarljósi. Griðastaðir sýna felustaði, afdrep og vinjar; staði þar sem maðurinn getur verið einn með sjálfum sér og leitað skjóls.
Skjól er fyrsta umfangsmikla ljósmyndaverkefni Einars Fals eftir að hann lauk við Sögustaði – í fótspor W. G. Collingwoods. Sýning með þeim verkum hlaut umtalsverða athygli eftir að hún var opnuð í Þjóðminjasafn Íslands á Listahátíð vorið 2010, og hafa verkin síðan meðal annars verið sýnd í Hof á Akureyri, Listasafnið á Ísafirði og í Frankfurt Kunstverein í Þýskalandi. Samfellt bókverk höfundar var tilnefnt til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.