Sigurður Guðjónsson
Sigurður Guðjónsson er fyrsti listamaðurinn í sýningaröð Listasafns ASÍ þar sem skipulagðar eru einkasýningar valinna listamanna á tveimur stöðum á landinu – til skiptis á höfuðborgarsvæðinu og í öðrum landshlutum. Sýning hans Innljós var sett upp á í kapellu Sankti Jósefsspítalans í Hafnarfirði (2017) og að Kleifum við Blöndu (2018) og hlaut sýningin Íslensku myndlistarverðlaunin 2018.
Sigurður Guðjónsson (f. 1975) lærði í Vín, Reykjavík og Kaupmannahöfn. Hann sýndi list sína fyrst um aldamótin í listamannareknum rýmum í Reykjavík og dökk en ágeng vídeóverk hans vöktu strax athygli, ekki aðeins á Íslandi heldur einnig í Berlín, New York, Lundúnum, Peking, Seúl og alls staðar þar sem þau hafa verið sýnd. Hann notar vídeó og lifandi myndir en að mörgu leyti mætti einnig skilgreina verk hans sem tónlist. Hann notar tímamiðil (vídeó) í verkum sem fanga áhorfandann með ryþma og endurtekningu og tengja mynd og hljóð á þann hátt að þau virðast víkka skynsvið manns og vekja nýjar kenndir. Verkin eru oftast hæg og í þeim felst gjarnan vélræn endurtekning; þau draga mann inn í taktfasta endurtekningu en vaxa líka þegar maður staldrar við og skynjar fleiri þætti þeirra, skrýtnar lúpur og taktmynstur sem geta orðið næstum alltumlykjandi. Á síðustu árum hefur Sigurður líka unnið með tónskáldum og þannig búið til verk sem sameina vídeó, rafhljóð og lifandi flutning. Hann víkkar sífellt út sköpunarsviðið en verk hans bera sterk persónuleg einkenni og skapa undarlega nánd sem styrkir skynhrifin enn frekar.