Áslaug Thorlacius og Finnur Arnarson og börn

ÞAR SPRETTA LAUKAR

27. nóvember 2010 – 19. desember 2010

Áslaug Thorlacius, Finnur Arnar Arnarson, Salvör, Kristján, Hallgerður og Helga Thorlacius Finnsbörn fluttu inn í Listasafn ASÍ í Ásmundarsal og unnu þar að uppsetningu myndlistarsýningar sem opnuð var laugardaginn 27. nóvember kl. 15.00. Á sýningunni voru verk unnin með margvíslegri tækni.

Þetta var í annað sinn sem fjölskyldan sýndi saman. Fyrri sýninguna settu þau upp fjórum árum fyrr eftir fjögurra mánaða dvöl í gestavinnustofu í Suður-Kína, þar sem þau voru einkum að máta sig inn í kínverskan menningarheim. Að þessu sinni beindu þau sjónum meira inn á við og skoðuðu hornsteina heimilis og fjölskyldu í samhengi við íslenskar hefðir og veruleika.

Previous
Previous

Curver Thoroddsen – FJÖLSKYLDUKVINTETTINN II

Next
Next

Anna Hallin og Ósk Vilhjálmsdóttir SPOR