Kosningaréttur kvenna 100 ára

FRENJUR OG FÓRNARLÖMB

14. maí 2015 til 28. júní 2015

Sýningin Frenjur og fórnarlömb er haldin í tilefni þess að árið 2015 voru liðin hundrað ár frá því að konur fengu kosningarétt. Þetta er sýning þar sem konur fjalla um konur, draga fram ýmsar birtingarmyndir kveneðlisins og fjalla um stöðu kvenna í fortíð og samtíma.

Hér leiða saman hesta sína ellefu fulltrúar íslenskra listakvenna sem hver um sig hefur skapað sér sérstöðu og í listsköpun sinni tekist á við erfiðar spurningar sem varða konur og kyn. Þessar konur tilheyra þremur kynslóðum listakvenna og tjá sig með ólíkum miðlum og aðferðum.

Auk þess skrifa Anna Hallin, Eirún Jónsdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Lóa Hjálmtýsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Rakel MacMahon og Valgerður Guðlaugsdóttir stutta texta í sýningarskrá þar sem þær velta fyrir sér þema sýningarinnar.

Leitað er í eldri viðtöl við Elínu Pjet. Bjarnason, Rósku og Sigrid Valtingojer sem eru látnar, en þar má finna ummæli sem tengjast sýningarefninu.

Viðfangsefnin geta stundum verið dapurleg en húmorinn er aldrei langt undan. Þó reynsla, efnistök og efniviður listamannanna sé mismunandi, er umfjöllunarefnið það sama: frenjan og fórnarlambið sem iðulega búa báðar í sömu konunni.

Svalar konur, konur í uppreisn, yfirgefnar konur, brjálaðar konur, heilagar konur og mæður hafa yfirtekið safnið.

Það er ekki langt síðan konur urðu áberandi gerendur í vestrænni myndlist, þó þær hafi alltaf verið þarna — oft ónafngreindar á hliðarlínunni. Lengst af var konan fyrst og fremst módel, efniviður í aðra konu eða hugmynd um konu — sköpunarverk karlmanns. Það er ekki laust við að enn glytti í þessa slagsíðu þegar flett er í aftustu síðum listasögunnar, þrátt fyrir þá staðreynd að konur hafa í gegnum tíðina ekki lagt minna til myndlistarinnar en karlar.

Um svipað leyti og konur fengu kosningarétt hér á landi var það helst í vefnaði og textíl sem kona gat látið ljós sitt skína á þessum vettvangi, og verk hennar þá gjarnan afgreidd sem handverk fremur en myndlist af þeim sem til þóttu þekkja.

Konurnar á þessari sýningu, höfundar jafnt sem höfundarverk, beina athyglinni að tómarúminu sem blasir við í karllægri listasögu um leið og þær senda henni langt nef.

Þó færri orðum hafi verið eytt í konur en karla þegar fjallað er um myndlist, er enginn hörgull á nöfnum og lýsingarorðum yfir þennan helming Íslendinga. Tungumálið er spegill þjóðarsálarinnar og orð íslenskrar tungu sem lýsa konum eru mýmörg. Sum hafa gleymst og ný orðið til í tímans rás, og ef til vill er það einmitt þegar þessi þróun er skoðuð sem staða íslenskra kvenna verður sýnilegust.

Í Gryfju safnsins hefur hluta þessara orða verið safnað saman — orðum sem spegla fordóma og kvenfyrirlitningu en einnig ást, upphafningu og mikilleika íslenskra kvenna.

Sýningarstjórar:
Steinunn G. Helgadóttir og Kristín G. Guðnadóttir

 

Make it stand out.

It all begins with an idea. Maybe you want to launch a business. Maybe you want to turn a hobby into something more. Or maybe you have a creative project to share with the world. Whatever it is, the way you tell your story online can make all the difference.

Make it stand out.

It all begins with an idea. Maybe you want to launch a business. Maybe you want to turn a hobby into something more. Or maybe you have a creative project to share with the world. Whatever it is, the way you tell your story online can make all the difference.

Make it stand out.

It all begins with an idea. Maybe you want to launch a business. Maybe you want to turn a hobby into something more. Or maybe you have a creative project to share with the world. Whatever it is, the way you tell your story online can make all the difference.

Previous
Previous

Þormóður Karlsson YFIRLITSSÝNING

Next
Next

Björk Guðnadóttir ÁFORM INNRI FRAMKVÆMD SPENNA