Kristinn G. Harðarson – FJALLIÐ GRÆNA / STÖPULLINN

13. maí 2015 til 02. ágúst 2015

Stöpullinn - Kristinn G. Harðarson

14. maí til 2. ágúst 2015 verður myndverk Kristins G. Harðarsonar á Gunnfríðarstöpli fyrir framan Listasafn ASÍ við Freyjugötu 41.

Verk Kristins er úr plexigleri og samsettum ljósmyndum sem teknar eru á Vörðufelli og í næsta nágrenni þess en verkið er það fimmta í röð listaverka sem sett verða á stöpulinn en hann var tekinn í notkun í október 2013.

Val á listamönnum á þessum sýningarvettvangi fer þannig fram að þeir velja sjálfir eftirmann sinn á stöplinum.

Stöpullinn er styrktur af Reyjavíkurborg.

Previous
Previous

Margrét H. Blöndal og Huginn Þór Arason – MYNDVERK – mars 2015

Next
Next

Samsýning – #KOMASVO – jan 2015