Margrét H. Blöndal og Huginn Þór Arason – MYNDVERK

7. mars 2015 – 3. maí 2015
Stöpullinn – Margrét H. Blöndal og Huginn Þór Arason

Laugardaginn 7. mars kl. 15:00 verður myndverk eftir Margréti H. Blöndal og Hugin Þór Arason afhjúpað á Gunnfríðarstöpull, fyrir framan Listasafn ASÍ við Freyjugötu 41, þar sem höggmynd Gunnfríðar Jónsdóttur Á heimleiðstóð áður.

Verk Margrétar og Hugins er það fjórða í röð listaverka sem sett hafa verið á stöpulinn, en Gunnfríðarstöpull var tekinn í notkun í október 2013.

Val á listamönnum á þessum sýningarvettvangi fer þannig fram að listamennirnir velja sjálfir eftirmann sinn á stöplinum.

Stöpullinn er styrktur af Reykjavíkurborg.

Previous
Previous

Unnar Örn – BROTABROT ÚR AFREKASÖGU ÓEIRÐAR: II. HLUTI – mars 2014

Next
Next

Kristinn G. Harðarson – FJALLIÐ GRÆNA – maí 2015