Margrét Helga Sesseljudóttir
UNDUR SEM ER
HÓGVÆR GUÐ
Stöpullinn – 21. maí 2016 til 01. janúar 2017
Nú er á Stöplinum myndverk Margrétar Helgu Sesseljudóttur; Undur sem er hógvær guð á stöpli Gunnfríðar Jónsdóttur fyrir framan Listasafn ASÍ við Freyjugötu 41.
Verk Margrétar Helgu er það sjöunda í röð listaverka sem sett verða á stöpulinn en hann var tekinn í notkun í október 2013. Val á listamönnum á þessum sýningarvettvangi fer þannig fram að þeir velja sjálfir eftirmann sinn á stöplinum.