NÚNINGUR / FRICTION

14. apríl 2012 – 13. maí 2012

NÚNINGUR

NÚNINGUR / FRICTION byggir á hugmyndum sem sýningarstjórarnir Einar Garibaldi Eiríksson, Kristinn E. Hrafnsson og Ólafur Gíslason hafa rætt og mótað á undanförnum misserum. Verkefnið tengist djúpstæðum áhuga þeirra á fjölþættum tengslum myndlistar og borgarsamfélags. Í þessum hugmyndum kristallast þættir sem legið hafa til grundvallar í þeirra eigin verkum, allt frá einfaldri framsetningu borgarinnar í myndlist, til margvíslegrar vinnu með staðhætti, inngrip í opinber rými og flóknari samfélagsleg tengsl.

Verkefnið setur hugmyndir listamanna í öndvegi sem nýta sér þær sérstöku aðstæður sem borgin býður upp á, meðal annars með því að stofna til samstarfs við ýmsar stofnanir, fyrirtæki og einstaklinga sem geta stutt framkvæmd eða þróun hugmyndanna. Hér er saman kominn öflugur hópur listamanna sem hafa í gegnum árin, á einn eða annan hátt, tekist á við viðfangsefni verkefnisins í eigin myndlistarhugmyndum.

Hluti þessara listamanna komu að kennslu í vinnustofu á vormisseri við Listaháskóli Íslands, þar sem nemendur unnu með tengdar listhugmyndir og þróuðu út frá þeim verk á eigin forsendum fyrir sýninguna. Einnig koma að sýningunni fræðimenn sem skrifa greinar um „myndlistina í borginni og borgina í myndlistinni“ út frá eigin sjónarhornum.

Sýningin í Listasafn ASÍ er eins konar miðstöð eða vinnustofa verkefnisins NÚNINGUR / FRICTION, en verk listamannanna verða sett upp á ólíkum tímum og í margvíslegum birtingarmyndum víða um borgina á þessu ári. Sýningin miðlar bakgrunnsupplýsingum um verk og athafnir listamannanna og veitir jafnframt yfirlit yfir verkefnið í heild sinni.

Á sýningunni er fjölbreytt efni sem safnað hefur verið saman, svo sem upptökur af viðburðum og athöfnum, textar, teikningar og hugmyndir að verkum sem þegar hafa verið unnin eða eru í bígerð. Sýningarrýmið verður þannig eins konar rannsóknarmiðstöð á borgarumhverfinu á myndlistarlegum forsendum. Vikulega, á meðan sýningin stendur, verður boðað til málþinga um verkefni listamannanna og tengd málefni.

Þátttakendur eru:
Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Ásmundur Ásmundsson, Berglind Jóna Hlynsdóttir, Brynjar Helgason, Christian Hasucha, Einar Garibaldi Eiríksson, Elin Wikström, Gunnar J. Árnason, Haraldur Jónsson, Harpa Arnardóttir, Hjálmar Sveinsson, Hlynur Hallsson, Indriði Arnar Ingólfsson, Ingirafn Steinarsson, Ívar Glói Gunnarsson, Karl Torsten Stallborn, Katrín Eyjólfsdóttir, Katrína Mogensen, Kristinn E. Hrafnsson, Margrét H. Blöndal, Nikulás Stefán Nikulásson, Nína Óskarsdóttir, Ólafur S. Gíslason, Páll Haukur Björnsson, Ósk Vilhjálmsdóttir, Ragna Sigurðardóttir, Stefán Óli Baldursson, Una Ösp Steingrímsdóttir, Unnar Örn J. Auðarson, Þorvaldur Þorsteinsson, Þröstur Valgarðsson, Æsa Sigurjónsdóttir.

Previous
Previous

Rúrí – SJÁLFSTÆTT FÓLK – IC-98 – WOOLOO

Next
Next

Einar Falur Ingólfsson – SKJÓL