Lars Ravn, Holger Bunk og Helgi Þorgils Friðjónsson

10. ágúst 2012 – 02. september 2012
Lars Ravn, Holger Bunk og Helgi Þorgils Friðjónsson

Holger Bunk, Lars Ravn og Helgi Þorgils Friðjónsson sýna málverk, teikningar og innsetningu í Listasafn ASÍ við Freyjugötu.

Föstudaginn 10. ágúst var opnuð í Listasafni ASÍ sýning á verkum listamannanna Lars Ravn, Holger Bunk og Helga Þorgils Friðjónssonar. Þeir hafa á undanförnum árum sýnt saman í Danmörku, ýmist þrír saman eða í stærri hópum.

Fyrsta sýning þeirra var Blektårer í Overgaden ned Vandet í Kaupmannahöfn árið 1984. Næst sýndu þeir á Mongrel Muse í Silkeborg Kunstmuseum árið 1993, ásamt Raymond Pettibon, Knud Odde og Milan Kunc. Árið 1999 settu þeir upp sýninguna Dagens Eventyr í Galleri Ægidius og Galleri Carsten Frøkjær.

Síðast sýndu þeir með listhópnum Corner í Charlottenborg í Kaupmannahöfn árið 2007. Þar voru þeir með stóra innsetningu sem samanstóð af veggteikningu og myndum unnum á pappír, og seldist verkið í heilu lagi til Statens Museum for Kunst í Kaupmannahöfn.

Fyrirhuguð er sýning í Þýskalandi á næsta eða þarnæsta ári.

Saman hófu þeir feril sinn á tímabili sem kennt hefur verið við „Nýja málverkið“ á Íslandi í kringum 1980 og þar er því um jaðartengingu að ræða. Myndgerð þeirra er frásagnarleg, með margvíslegum tengingum við söguna og augljósri svörun við módernisma síðustu aldar, ásamt tengingu við póstmódernískan heimspekilegan grunn.

Sýningin í ASÍ samanstendur af miklum fjölda teikninga og í Arinstofu safnsins hafa þeir unnið saman rýmisteikningu beint á vegginn.

Previous
Previous

Útimyndlistarsýning – MINNING UM MYNDLIST

Next
Next

Rúrí – SJÁLFSTÆTT FÓLK – IC-98 – WOOLOO