Rúrí – SJÁLFSTÆTT FÓLK – IC-98 – WOOLOO
19. maí 2012 – 01. júlí 2012
Sjálfstætt fólk – Listahátíð 2012
Rúrí – IC-98 – Wooloo
„Sjálfstætt fólk“ (I)ndependent People er viðamikið og metnaðarfullt alþjóðlegt myndlistarverkefni sem leggur undir sig mikinn fjölda sýningarrýma, sýningarsala, safna og opinberra staða í Reykjavík og víðar á Listahátíð í Reykjavík og fram eftir sumri. Í verkefninu Sjálfstætt fólk er lögð áhersla á samtímamyndlist frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum.
Í þessu yfirgripsmikla verkefni taka þátt 29 samstarfshópar listamanna sem saman telja yfir 100 þátttakendur, sem allir eru virkir í gamalgrónum eða nýjum samstarfsverkefnum. Í hópunum eru listamenn frá Íslandi og öllum Norðurlöndunum, Litháen, Bretlandi, Frakklandi, Bandaríkjunum og víðar. Sýningarstjóri verkefnisins er Jonatan Habib Engqvist.
Ásmundarsalur
Rúrí / Future Cartography – Kortlagning framtíðar
Í mörgum verka sinna hefur Rúrí unnið með framtíðarfornleifafræði sem megininntak, en önnur viðfangsefni hennar varða meðal annars jafnvægi í náttúru jarðar og huglæg gildi. Í nýjustu verkum sínum tekst hún á við framtíðarkortlagningu.
Í samvinnu við Gunnlaug M. Einarsson, landfræðing, hefur hún dregið upp landakort sem varða framtíðina og byggja á spám um yfirvofandi breytingar á lögun landa. Samstarfsmaður hennar við útfærslu kortanna er María Rún Jóhannsdóttir. Sýningarstjóri er Jonatan Habib Engqvist.
Sjá nánar á: www.independentpeople.is
Arinstofa
IC-98 / A View from the Other Side
Kvikmyndin skráir myndræna hrörnun fiskmarkaðar í Turku í teiknaðri mynd (70 mínútur). Verkinu er ætlað að vera spegilmynd þeirra breytinga sem eiga sér stað í Norður-Evrópu.
Gryfjan
Wooloo / New Life Horbelev
Listhópurinn Wooloo frumsýnir í Listasafn ASÍ heimildarmyndina New Life Horbelev. Myndin lýsir viðbrögðum íbúa smábæjar í Danmörku þegar listamennirnir fengu þá til að gera sameiginlegan skúlptúr úr sjónvörpum sínum og nota þann tíma sem sparaðist frá sjónvarpsglápi í að umgangast hvert annað meira.
Forstöðumaður Listasafns ASÍ fetar í fótspor bæjarbúa og leggur til sýningarinnar eigið sjónvarp og sófa.